Hleð inn spilara...


Fréttir | þriðjudagur 4. október 2011 | 17:42

GolfTV: Palmer getur ekki vippað með tveimur höndum


Enski kylfingurinn Jason Palmer leikur á evrópsku Áskorendamótaröðinni en hefur tileinkað sér mjög sérstakan stíl vippstíl. Palmer segist sjálfur vera mjög stöðugur af teig og í járnahöggum. Hann segir einnig að hann sé frábær á flötunum. Vandamálið í leik Palmer er hins vegar vipp og pitch högg.

Þegar ég var unglingur þá var allt í himna lagi en í loka áhugamannaferilsins fór að síga á ógæfuliðina. Það að geta ekki vippað tók mjög á sálina,“ segir Palmer sem uppgötvaði á endanum að hann gæti ekki vippað með tveimur höndum. Þegar hann slær með einni hendi vippar hann eins og engill.

Um leið og ég skipti yfir í það að vippa með einni hendi þá fór ég að skora betur,“ sagði Palmer sem er 26 ára gamall. Nánar má sjá þennan áhugaverða Englending í myndbandinu hér að ofan.


Jason Palmer í sveiflu með báðum höndum.