Fréttir | mánudagur 3. október 2011 | 13:41
Hoey upp í 98. sæti - Woods dottinn út af topp-50
Norður-Írinn Michael Hoey flaug upp heimslistann þessa vikuna og er kominn í 98. sæti á heimslistanum eftir sigur sinn í Alfred Dunhill Links mótinu sem lauk í gær á Evrópumótaröðinni. Hoey var í 271. sæti fyrir helgina og heljarstökk upp listann eftir sigurinn sem var hans stærsti á ferlinum.
Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti listans með 10,7 meðalstig. Rory McIlroy nálgast Lee Westwood sem er í öðru sæti. Westwood er með 7,79 meðalstig en McIlroy með 7,35 meðalstig. McIlroy varð annar í Alfred Dunhill Links mótinu en sigur hefði fleytt honum upp fyrir Westwood í öðru sætinu.
Kevin Na er einnig á uppleið eftir sigur sinn í Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open mótinu sem lauk í gær á PGA-mótaröðinni. Na fer upp um 14 sæti á milli vikna og situr nú í 62. sæti.
Stóru fréttirnar eru þær að Tiger Woods er dottinn niður í 51. sæti heimslistans eftir dapurt tímabil. Woods hefur lítið leikið í ár vegna meiðsla og hefur halað inn fáum stigum til heimslistans á undanförnum tveimur árum. Hann getur þó snúið við blaðinu í vikunni þegar hann tekur þátt í Frys.com Open mótinu á PGA-mótaröðinni.
Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1. Luke Donald 10.70
2. Lee Westwood 7.79
3. Rory McIlroy 7.35
4. Steve Stricker 6.56
5. Dustin Johnson 6.49
6. Martin Kaymer 6.34
7. Jason Day 5.94
8. Adam Scott 5.69
9. Matt Kuchar 5.61
10. Phil Mickelson 5.59
11. Nick Watney 5.37
12. Charl Schwartzel 4.93
13. Webb Simpson 4.91
14. Graeme McDowell 4.73
15. KJ Choi 4.70
16. Bubba Watson 4.38
17. Justin Rose 4.23
18. David Toms 4.16
19. Hunter Mahan 4.14
20. Paul Casey 3.96
Staðan á heimslistanum