Hleð inn spilara...
Fréttir | sunnudagur 2. október 2011 | 17:11
Na slapp með víti eftir að hafa viljandi slegið vindhögg
Bandaríski kylfingurinn Kevin Na lenti í undarlegu atviki á 15. teig í Justin Timberlake Shriners Hospitals for Children Open mótinu sem lýkur í kvöld á PGA-mótaröðinni. Na stillti sér upp eins og hann væri að fara að slá, tók aftursveiflu en dró kylfuna vel fyrir ofan boltann í framsveiflunni og hitti því ekki boltann. Hann sló því vindhöggi en ætli kylfingur sér að slá boltann telur það sem eitt högg.
Na fékk hins vegar höggið ekki skráð á sig þar sem hann segist sjálfur hafa ákveðið að slá ekki boltann. Taka verður kylfinginn trúanlega því augljóst er af myndbroti að hann reynir ekki að slá boltann, annars ætti hann líklega ekki heima á PGA-mótaröðinni.
Atvikið er hins vegar umdeilt enda ekki oft sem þessi leið er farin við að hætta við að slá högg. Margoft hafa kylfingar hætt við að slá í baksveiflunni og það hefur Tiger Woods t.d. margoft gert. Na er efstur í mótinu ásamt Nick Watney fyrir lokahringinn.
Atvikið má sjá hér að ofan en gaman væri ef kylfingar myndu tjá sig sína skoðun um atvikið á spjallinu.
