Fréttir | föstudagur 30. september 2011 | 19:37
Farið í kringum reglurnar fyrir Thompson
Hin 16 ára gamla Lexi Thompson frá Bandaríkjunum mun fá fullan keppnisrétt á LPGA-mótaröðinni á næsta ári eftir að umsókn hennar um keppnisrétt var samþykkt. Kylfingar þurfa að vera 18 ára gamlir til að mega leika á mótaröðinni með fullan keppnisrétt en stjórn mótaraðarinnar ákvað að beygja reglurnar fyrir hina ungu Thompson sem er gríðarlega efnileg og vann mót á mótaröðinni fyrir skömmu.
„Lexi Thompson hefur sérstaka hæfileika og hefur vaxið með hverju árinu, bæði innan sem utan vallar. Árangur hennar, þá sérstaklega sigur hennar í Navistar LPGA Classic mótinu, hefur komið henni upp í topp-50 á heimslista kvenna,“ sagði Mike Whan, framkvæmdastjóri LPGA-mótaraðarinnar.
Thompson varð yngsti sigurvegari í sögu LPGA-mótaraðarinnar þegar hún sigraði í Navistar mótinu fyrir skömmu. LPGA-mótaröðin hefur haft þá reglu að leyfa kylfingum undir 18 ára aldri ekki að fá fullan keppnisrétt og vilja þannig stuðla að því að ungir kylfingar ljúki grunnskólamenntun. Thompson gæti orðið eitt stærsta nafnið í kvennagolfinu innan örfárra ára.