GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | mánudagur 26. september 2011 | 17:36

GolfTV: Sjaldan lognmolla í kringum John Daly


Bandaríski kylfingurinn John Daly er ólíkindatól og maður veit hreinlega aldrei upp á hverju hann tekur næst. Hann var við keppni í Opna austurríska mótinu á Evrópumótaröðinni í síðustu viku en lenti í talsverðum vandræðum á 15. holu á öðrum hring.

Fyrst var hann sérlega óheppinn úr teighöggi sínu þar sem boltinn skoppaði að lokum í vatnið. Daly tók þeim tíðindum ekkert sérstaklega vel og kastaði kylfunni í vatnið.

Daly sló því þriðja höggi sínu inn að flöt en höggið var of langt og staðnæmdist undir sjónvarpsturni við 15. flötina. Daly tók víti og lék holuna á sex höggum eða tveimur höggum yfir pari. Þegar Daly var kominn á 16. teig þá gekk að honum dómari sem tjáði honum að hann hafi ekki borið sig rétt að þegar hann tók vítið. Fyrir það fékk Daly tvö högg í víti.

Í kjölfarið strunsaði Daly af vellinum enda fékk hann tvö högg í víti og var ekki að fara að komast í gegnum niðurskurðinn. Hann sá því enga ástæðu til að klára hringinn. Alltaf hasar á John Daly eins og sjá má hér að neðan.