Á vellinum með Röggu | föstudagur 25. nóvember 2005 | 11:23

Vetrargolf


Margir íslenskir kylfingar leggja kylfunum sínum um leið og hitastigið er komið niður fyrir ákveðið hitastig.  Golfvöllurinn lítur kannski ekki út fyrir að vera í leikhæfu ástandi, þrátt fyrir það getur golffíkilinn hæglega leikið golf allt árið um kring, jafnvel á Íslandi(Undantekning: Allt á kafi í snjó).
Lykillinn að ánægjulegri stund á golfvellinum í kulda og trekki er að læra að laga leik sinn og væntingar að aðstæðum hverju sinni.

Hitaðu upp kroppinn
Of margir kylfingar hita ekki upp á köldum dögum vegna þess að þeir vilja drífa sig af stað.   Það er með kroppinn eins og vélina í bílnum, það tekur lengri tíma að hita hann upp þegar kalt er.
Gakktu rösklega frá bílaplaninu að fyrsta teig, taktu þar nokkur englahopp á staðnum.
Teygðu á neðra baki og aftanverðum lærvöðvum með því að beygja þig rólega fram. Gættu að því að læsa ekki hnjám, haltu utanum kálfa og pressaðu líkamann varlega saman, haltu í 5- 10 sek og endurtaktu.

Teygðu á öxlunum með því að nota kylfu.  Haltu kylfunni með báða handleggi beina fyrir aftan bak, hallaðu þér fram og láttu handleggina síga fram, haltu stöðunni í 5-10 sek, endurtaktu. Gættu að því að læsa ekki hnjám!  Ef þér finnst þú ekki nægilega heit/ur er mjög gott að sveifla handleggjunum nokkrum sinnum í hringi og taka svo tvær kylfur saman og sveifla áður en þú lætur vaða(með einni að sjálfsögðu).

Boltaflug
Köld veðrátta er ekki bara neikvæð – ef þú nýtir þér það besta sem í boði er hverju sinni.  Boltinn flýgur ekki eins langt en hann rúllar lengra þegar hann er lentur.  Af þeim sökum getur verið gáfulegt að reyna að slá lægri bolta.  Notaðu dræver með lægri gráðu 9° í stað 12° og hafðu boltann örlítið aftar í stöðunni, þá er auðveldara að kalla fram drag(draw) sem eykur högglengd þína;)

Skynsemi í  innáhöggum
Frosin jörð getur reynst vel þegar slegið er af teig, en kemur því miður að litlu gagni við annað.
Reyndu að vera stutt/ur í innáhöggunum þínum. Þegar flatirnar frjósa skoppar boltinn 10-20 metra upp í loftið þegar hann lendir, og það er erfitt fyrir þig að nýta þér fláann og spunann sem stuttu járnin þín gefa þér við venjulegar aðstæður.  Taktu kylfu minna en þú þarft á tiltekna vegalengd.

Hvernig fleygjárn(wedge) á ég að nota?
Ef þú vilt fara vel með handarbökin og úlnliðina er skynsamlegast að nota fleygjárn með litlu bounci sem slær síður til baka þegar kylfuhausinn lendir í jörðinni.   Af þeim sökum getur verið skynsamlegt að fjarlægja sandjárnið úr pokanum.  Við kaldar vetraraðstæður hentar mun betur að rúlla boltanum heldur en lyfta honum kringum flatirnar.  Þetta á jafnvel við um sandgryfjurnar líka. Ef allt er frosið og bakkinn er ekki hár er vel þess virði að prófa að pútta.
Láttu hugmyndaflugið ráða!!!  og prófaðu þig áfam með allskonar högg:)
 
Grínlaus grín
Flatirnar eru mun ósléttari og illviðráðanlegri en þú átt að venjast, svo ekki gera ráð fyrir að þú rekir mikið niður. Þau eru líka hraðari og boltinn leitar mun frakar af leið heldur en að halda stefnu.
Reyndu því frekar að einbeita þér að réttum hraða heldur en stefnu. Síðan má gefa meterinn og minna ef allir samþykkja áður en leikur hefst?

Lágt skor!
Ekki reikna með því að þú náir að skora lægra en skóstærð þína á 9 holum, það eru hreinlega of margir óvissuþættir. Númer eitt reyndu að hafa gaman af þessu.  Þú munt ekki skora jafn vel og á góðum sumardegi.  Leiktu þér við vini þína, það eru til margar skemmtilegar útgáfur af því hvernig hægt er að leika sér í golfi.  Kíkið á: http://kylfingur.vf.is/Spjall/default.aspx?path=/resources/Controls/31.ascx&C=ConnectionString&Q=Threads&Groups=0&ID=275&Prefix=147

Þegar ég fer út á völl að vetri til og ekki má leika inn á sumarflatirnar, finnst mér það há leiknum hvað vellirnir eru stuttir.  Þá finnst mér gott að velja mér sandgryfju við flöt, reyni að hitta ofan í hana í innáhögginu og þaðan spila ég á vetrarflötina.  Þetta gerir leikinn að sjálfsögðu krefjandi og erfiðara verður að ná góðu skori.  Á móti kemur að ég slæ ákveðið högg í glompuna, æfi glompuhögg og fæ þjálfun í því að koma mér úr vandræðum en verð að reyna að skila skori.  Ég passa mig samt á því að hugsa sem minnst um skorið heldur bara höggið sem ég er að slá hverju sinni.

Hvaða áhrif hefur kuldinn á golfboltann
Kuldi hefur áhrif, þrátt fyrir að það sé ekki alltaf jafn greinilegt.  Kaldir boltar pressast ekki jafnvel saman á höggfleti kylfunnar, sem kemur niður á högglengd þinni. Veðrið í sjálfu sér hefur ekki svo mikil áhrif heldur ástand boltans og því kaldari sem boltinn er því styttra flýgur hann.  Geymdu boltana þína við stofuhita en ekki úti í bíl og þegar þú ert að leika þér í kuldanum er mjög sniðugt að hafa aukabolta í vasanum og slá alltaf með ,,heitum´´ bolta af teig;)"
Notið mýkri bolta á veturna og í miklum kulda það eykur högglengd, upplýsingar, um hvaða boltar henta best í kulda, fáið þið í golfvöruverslunum.

Klæðnaður
Powerstretch undirfatnaðurinn frá 66° Norður er snilldarfatnaður, þunnur en veitir ótrúlega góða vörn gegn kulda.  Gamla góða ullin er líka klassísk, aðalatriðið er að láta sér ekki verða kalt en ekki er gott ef klæðnaðurinn hindrar hreyfingarnar.  Mér hefur reynst vel að vera í þunnum jakka og vindbuxum utanyfir powerstretch-fötunum mínum þó kuldinn sé mikill.   Þegar kaldast hefur verið hef ég stundum verið í 2 örþunnum paclite jökkum.  Á þennan hátt getur maður klætt af sér kuldann án þess að líða eins og Michelin karlinum eða kerlingunni.

Ekki frjósa í hel
Versti óvinurinn er ekki frosin braut eða flöt, heldur Kári kuldaboli sem reynir að bíta í bleika húð um leið og færi gefst. Passaðu fingurna, eyrun og tærnar. Notaðu vetrarhanska og settu á þig lúffur milli högga.  Passaðu upp á höfuðfatið að það veiti nægjanlegt skjól og reyndu að verða þér út um sérhannaða hitasokka.   Ekki ganga fram af þér , sumir dagar eru hreinlega of kaldir til golfiðkunar og það er mismunandi hvað fólk þolir. Ef þú gengur of langt gæti liðið langur tími þangað til að þig langar aftur á völlinn.

Gakktu rösklega
Golfbíllinn er ekki vinur okkar í kulda, aukið blóðflæði er nauðsynlegt þegar við viljum halda á okkur hita, röskur gangur er líka vænlegri en hægur.
Þó eru til ýmiskonar hjálpartæki fyrir þá sem ekki geta leikið golf án þess að vera á bíl: Hlíf yfir bílinnclearvisiongolf.com hitaricoleman.com(golfcat) og hitateppichillbuster.com

Inniæfingar
Notaðu tímann þegar snjór hylur jörð til þess að vinna í sveiflunni þinni.  Básar eru tilvalinn staður, og það er líka hægt að æfa sig heima.  Talaðu við kennara sem þú treystir og láttu líta á þig reglubundið, leggðu áherslu á grunninn þinn, uppstillingu, grip, boltastöðu, jafnvægi  það er sígilt og gerir öllum gott.

Notaðu spegil
Spegill er besti vinur kylfingsins, hann segir alltaf satt. Límdu málningarlímband á stóra spegilinn þinn þar sem kylfan liggur í upphafsstöðu og annað þar sem kylfan er komin hálfa leiðina aftur(í mjaðmahæð).  Snúðu þér þannig að þú standir fyrri framan spegilinn og æfðu þig í að taka kylfuna frá upphafsstöðu í mjaðmahæð.
 
Notaðu vegginn
Ef þér hættir til að missa jafnvægið í aftursveiflunni?  Reyndu þá þetta:  Settu kodda milli veggjarins og höfuðsins á þér stilltu þér upp með kylfu í höndunum og taktu baksveiflur án þess að koddinn detti, gættu samt að því að hafa þyngdarpunktinn jafnt dreifðan um ilina, ekki í táberginu einu saman.

Hættir þér til að kippa kylfunni inn fyrir sveifluferilinn á leiðinni aftur?  Reyndu þá þetta:  Láttu bossann:) snerta vegginn og taktu kylfuna aftur í mjaðmahæð án þess að hún skelli á veggnum.  Ef þú tekur hana inn fyrir á leiðinni aftur mun hún skella á veggnum nánast samstundis.  Með því að æfa þig við vegginn að taka kylfuna hálfa leið styrkir þú sveifluferilinn þinn svo um munar.

Hjálpartæki
Ýmislegt er hægt að gera sér til dundurs innandyra ef bylurinn lemur á glugga.
Allir ættu að útbúa sér æfingaaðstöðu heimavið fyrir púttin, hægt er að kaupa púttmottur með holu t.d. í Nevada Bob.  John Garner sagði einhverntímann við mig:  ,,Ragnhildur mín, ef þú ætlar að ná langt í golfi skaltu gera eitthvað með pútternum þínum á hverjum degi’’.

Hægt er að kaupa netkörfur til að vippa í ef of hvasst er fyrir gömlu góðu regnhlífina, það er jafnvel hægt að æfa sig að vippa í stofunni.  Til eru mjúkir boltar bæði úr svampi og gúmmíi og hægt er að kaupa sér mottu til að leggja á gólfið til að vippa af.

Líkamsþjálfun yfir veturinn
Tímabil í hægindastólnum þar sem fylgst er með enska boltanum eða NBA getur verið kærkomið frí frá golfi.  Hafðu þó í huga að ef þú tekur þér algjört frí eru töluverðar líkur á því að líkaminn verði ekki í sem bestu standi þegar golfvertíðin byrjar aftur og hættan á meiðslum er meiri en ella.
Á veturna ættirðu að fylgja svipuðu æfingaskipulagi í ræktinni eins og þú gerir á öðrum tímabilum.  Kylfingar ættu að einblína á þol, styrk og liðleika með sérstakri áherslu á bak og axlir.  Golfsveiflan getur farið illa með snúningsvöðvann(rotator cuff) í öxlunum, sé honum ekki sinnt sérstaklega.  Hér á eftir fylgja nokkrar góðar æfingar frá Paul Schueren, en hann er yfirmaður ráðgjafar í sjúkraþjálfun fyrir PGA túrinn:

Þrekþjálfun
Gakktu á göngubretti eða hjólaðu á þrekhjóli a.m.k. þrisvar sinnum í viku 30 mínútur í senn.  Schueren notar teygjur þegar hann hjólar(eins og myndin sýnir) til að auka virkni æfingarinnar.

Magaæfingar
Magaæfingar eru eins og sveiflan þín, þú þarft að einbeita þér að líkasstöðunni.  Spenntu magavöðvana áður en þú byrjar og lyftu efri partinum aðeins það hátt að spennan viðhaldist. Gættu að því að beygja ekki bakið.
Tíðni:  3 sinnum 20, þrisvar sinnum í viku.

Handleggir og fætur
Liggðu á maganum og lyftu beinum skástæðum handlegg og fótlegg frá gólfi(haltu í 2 sekúndur) skiptu um hlið og endurtaktu.
Tíðni:  3 sinnum 20, þrisvar sinnum í viku.

Snúningsvöðvi axlar
Sittu bein/n í baki og láttu olnbogann liggja t.d. á hallandi bekk(sjá mynd) Lyftu tveggja kílóa lóðum úr axlarhæð í efstu stöðu(lóðréttur framhandleggur).  Gættu að þyngd lóða, hún má alls ekki vera of mikil, þetta á ekki að vera sárt. Skiptu um handlegg.
Tíðni: 3 sinnum 20, þrisvar sinnum í viku.

Festu teygjuband í hurðarhún; stattu hornrétt á hurðina með olnbogann 90°, framhandleggur snertir brjóstkassann, þumall vísar upp.  Togaðu  bandið frá hurðinni uns framhandleggur vísar beint fram, olnbogi liggur að síðu allan tímann.  Snúðu þér í hina áttina notaðu sama handlegg nema átakið verður í áttina að líkamanum.  Skiptu um handlegg.
Tíðni: 3 sinnum 10(átak að og átak frá), þrisvar sinnum í viku.

Hnébeygjur á öðrum fæti
 Stattu á öðrum fæti í tröppu eða á símaskránni:)  Haltu hinum, beinum á lofti. Með beint bak skaltu beygja þig um hnéð þannig að lausi fóturinn snerti jörð.
Prófaðu líka hnébeygjur á tánum:  Byrjaðu teinréttur, lyftu þér upp á tær og beygðu þig í hnjánum(með beint bak) u.þ.b. 30°.  Lyftu þér aftur upp í teinrétt ástand á tánum allan tímann.
Tíðni: 3 sinnum 10(báðar æfingar) þrisvar sinnum í viku. 

Kveðja Ragga :)