Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 24. janúar 2011 | 14:10

Vetraræfingar eru mikilvægar



Nú þegar nýtt ár er gengið í garð eru eflaust margir sem fara að huga að golfæfingum fyrir næsta sumar. Vetraræfingar eru mikilvægar ef kylfingar hafa áhuga á að lækka sína forgjöf næsta sumar. Til þess að ná árangri er mikilvægt að æfa skipulega og ráðast á þá þætti leiksins sem hefðu mátt vera betri síðastliðið sumar. Þeir sem halda tölfræði utan um sinn leik eiga ekki í neinum vandræðum með að meta hvað þarf helst að bæta. Ef mikilla tæknibreytinga er þörf mæli ég með að menn byrji ekki seinna en strax því tæknilegar breytingar á sveiflu geta tekið nokkra mánuði til að virka útá velli og tala nú ekki um undir örlitlu álagi.

--


Láttu greina sveifluna
Flestir golfkennarar eru komnir með vídeóbúnað og geta þar með sýnt nemandanum hvað þarf að laga. Hjá okkur í Keili geta menn komið með minniskubb og fengið sveifluna með sér heim og skoðað hana og séð atriðin sem golkennarinn var að tala um að breyta. Þessi aðferð hefur reynst ofboðslega vel og auðveldar kylfingum að muna hvað í raun þarf að laga. Þetta minnkar einnig líkurnar á að nemandinn fari að æfa eftir tíma og muni ekki hvað það var sem hann átti að huga að og ef hann man það ekki alveg getur hann skoðað vídeóið frá síðasta tíma. Sveiflugreining, hvort sem er með eða án vídeóupptöku, er nauðsynleg byrjun á vetraræfingum ef kylfingar eru ekki vissir um hvað þarf að laga.

Púttin
Það geta allir bætt sig í stutta spilinu. Hver kannast ekki við þessa setningu „Ég var að slá fínt en var með 42 pútt“. Það er gott að vera með góða tækni í púttum en alls ekki nauðsynlegt. Það sem skiptir höfuðmáli í púttum er að hafa trú á því að boltinn fari þangað sem hann á að fara og að kylfingar geri hlutina alltaf eins. Það eru fáir atvinnukylfingar með púttstroku sem er 100% eftir bókinni en samt eru þeir bestu með vel undir 30 púttum á hring að meðaltali þó enginn þeirra strjúki pútternum eins. Galdurinn er að strjúka alltaf eins og hafa trú á strokunni.
Ég mæli með að kylfingar láti greina púttstrokuna, með eða án vídeógreiningu, til þess að sjá hvort það sé nauðsynlegt að breyta einhverju. Það er líklegt að það séu kannski 1-3 atriði sem þarf að breyta bara til að eiga möguleik á að gera strokuna örugga og stöðuga. Eftir það ætti ykkar kennari að geta gefið ykkur æfingar varðandi lengarstjórnun, stefnustjórnun og fleira sem er mikilvægt til þess að verða stöðugri í púttunum.

Vipp
Oftar en ekki virðast tæknilegir gallar í sveiflu sýna sig í vippum hjá kylfingum. Til dæmis er mjög algengt að kylfingur sem skóflar í sveiflunni, þ.e.a.s. kylfuhausinn tekur of fljótt framúr höndum þegar boltinn er hittur, sýni sömu hreyfingar í vippum og eigi þar með mjög erfitt með að vippa vel. Í mörgum tilfellum, þegar þetta er tilfellið, er betra að ná tökum á vippum fyrst og betri hreyfingar í vippum skila sér svo yfir í sveifluna. Auðvitað er þetta mismunandi og mikilvægt að átta sig á því að enginn er eins og sömu hlutirnir henta ekki öllum.
Mín skoðun er sú að ef kylfingar ætla sér að ná árangri næsta sumar er nauðsynlegt að láta greina styrkleika og veikleika hvers og eins og láta fagmenn meta hvað skal leggja áherlsu á til þess að ná sem mestu útúr ykkar golfi næsta sumar.

Með golfkveðju, Siggi Palli