Á vellinum með Röggu | fimmtudagur 2. júní 2005 | 09:46
Réttar æfingar festa góðu hlutina í minni

Enginn er með „fullkomna“ golfsveiflu, ekki einu sinni Tiger Woods, eða Ernie Els. Sama er hægt að segja um æfingaskipulag, það er enginn ein „fullkomin“ leið til þess að æfa sig. Æfingarnar ættu að vera breytilegar og háðar því hver staða þín er í golfinu á hverjum tíma.
Byrjandi ætti að einbeita sér að undirstöðuatriðunum: Gripi, uppstillingu, jafnvægi, miði, sveifluferli o.s.frv. Markmiðið hér er að byggja upp einsleita, stöðuga og góða sveiflu. Á þessu stigi ættu allar æfingar að ganga út á eftirlit með grundvallaratriðum.
Kylfingar sem hafa spilað golf í 2-3 ár og hafa verið undir eftirliti hjá kennara með grunnin sinn eiga mun auðveldara með að þróa hlutina áfram (lækka sig í forgjöf) heldur en þeir sem hafa verið að glíma á eigin spýtur og eiga í erfiðleikum með grundvallaratriði eins og t.d. gripið. Ef eitthvað er komið upp í vana er erfitt að breyta því, hort sem það er gott eða slæmt. Eftirleikurinn verður því mun auðveldari ef þú venur þig á réttu hreyfingarnar og stellingarnar strax í upphafi.
Um leið og golfið þitt tekur framförum, breytist sýnin og þú lærir meira og meira um sjálfan þig og sveifluna þína. Samfara því breytast áherslur í æfingum. Gættu samt að því að gleyma grunninum aldrei. Allir kylfingar ættu reglulega að láta fagmann líta á grunninn sinn(hvort sem þeir eru há- eða láforgjafarkylfingar), þú getur hæglega breytt æfingunum þínum og áherslum en jafnframt verið á vaktinni gagnvart grundvallaratriðunum þínum.

Á þessu stigi viltu að markmiðið með æfingunum þínum sé að þjálfa högg sem eru lík höggunum sem þú raunverulega þarft að nota úti á velli.
Sem dæmi um góða æfingaaðstöðu má nefna Bása þar sem mismunandi fjarlægðir á flatir eru uppgefnar, hægt er að einbeita sér að því að hitta brautir, slá upp úr mismunandi glompum og æfa pútt og vipp við mismunandi aðstæður og brot. Framkallaðu tilfinningu eins og út á velli, t.d. með því að leika hring á æfingasvæðinu. Ef þú ert að æfa fyrir mót á ákveðnum velli geturðu notað skorkort þaðan.
Allt að 60% högganna þinna eru styttri en 100m, jafnvel þó að þú sért góður spilari. Æfingatímanum þínum ættirðu að verja í samræmi við það. Reyndu að flétta keppni inn í æfingarnar þínar, skoraðu á vin þinn og farðu í vipp og púttkeppni, það skerpir á þér og æfir þig í því að standa þig þó pressan sé mikil;)
Flestir kylfingar gera sér grein fyrir veikleikum sínum. Nýttu þér þessa vitneskju þegar þú skipuleggur æfingatímann þinn. Ef teighöggin þín eru góð er ástæðulaust að standa tímunum saman með dræverinn í höndunum. Skipuleggðu æfingatímann þinn, haltu bókhald um hvernig æfingarnar ganga og hvað þú æfir hverju sinni. Á þann hátt er mun auðveldara fyrir þig að henda reiður á veikleikum og styrkleikum þínum á hverjum tíma.
Mikilvægi góðra æfinga er ekki hægt að ofmeta. Jack Nicklaus sagði einhvertímann: „Enginn, alls enginn hefur orðið meistari í golfi án þess að stunda æfingar. “
Gangi ykkur vel, kv. Ragga:)