Á vellinum með Röggu | fimmtudagur 20. október 2005 | 11:33
Finndu jafnvægi og sveiflan þín batnar
Allar góðar golfsveiflur eiga það sameiginlegt að líkami kylfingsins er í jafnvægi. Ef þú finnur jafnvægið í sveiflunni þinn getur þú aukið hraðann á kylfuhausnum og um leið eykst stöðugleikinn í höggunum þínum. Ef þú missir niður jafnvægið í sveiflunni tapar þú taktinum og sveiflan verður brothætt.
Kylfingur sem er lengra kominn getur sveiflað hverri einustu kylfu í pokanum með sama stöðuga tempóinu, vegna þess að honum tekst að halda góðu jafnvægi frá upphafi til enda golfsveiflunnar. Lakari kylfingi hættir til þess að missa jafnvægið þegar hann sveiflar með lengri kylfunum sínum, oftast vegna of mikils sveifluhraða. Oft á tíðum er aukin spenna í líkamanum orsökin, en oftast er þó ástæðan sú að kylfingurinn er að reyna að sveifla kylfunni of hratt. Í báðum tilvikum eru miklar líkur á því að jafnvægi tapist og snertingin við boltann verði ófullkomin.
Til þess að finna þetta rétta jafnvægi, er mikilvægt að vita hvar þunginn á að vera hverju sinni gegnum sveifluferilinn. Leitaðu að góðu jafnvægi á eftirfarandi hátt, og höggin þín munu verða betri og stöðugri:)
UPPSTILLING
Þegar þú stillir þér upp, á þunginn að vera jafn á innri jarka beggja fóta. Ekki meiri á tám eða hælum. Þessi uppstilling býr þig betur undir golfsveiflu í jafnvægi eins og jafnvægi tennisleikara sem bíður eftir uppgjöf andstæðingsins. Ef þyngdin er of mikið í tánum, hættir kylfingnum til þess að taka kylfuna út fyrir höggstefnuna í aftursveiflunni. Ef þyngdin er of mikil í hælunum er hætta á að kylfan sé tekin of mikið inn fyrir höggstefnuna í aftursveiflunni. Hvorugur þessara ferla er góður til þess að byggja upp golfsveiflu sem eykur hraða á kylfuhaus, eða gefa rétta snertingu kylfuhauss við boltann.
Til þess að leita að jafnvægi í uppstillingu, hoppaðu þá jafnfætis upp úr stöðunni þinni. Ef þú ert í jafnvægi ættirðu að lenda jafnt á báðum fótum og hvorki missa jafnvægið afturfyrir þig né franmfyrir.
BAKSVEIFLA
Þegur þú vindur upp á efri partinn, færist u.þ.b. 90% þyngdarinnar yfir á hægri fótinn. Það er mjög mikilvægt að rétta ekki úr hægra hnénu heldur halda mýktinni. Margir kylfingar missa jafnvægið vegna spennu í fótleggjunum. Þeir rétta úr hnjánum þannig að hægra hnéð verður alveg stíft og beint í toppi golfsveiflunnar, og þungaflutningurinn verður öfugur. Í toppi golfsveiflunnar á jafnvægispunkturinn að vera beint yfir hægra fætinum. Ef svo er ættirðu að geta lyft vinstra fæti frá jörðu(alveg), haldið þeirri stöðu og talið upp að þremur án þess að líkaminn bifist.
FRAMSVEIFLA
Í framsveiflunni, ættu endalokin að vera í fullkomnu jafnvægi með þungann nánast 100% á vinstra fæti. Axlalína og mjaðmalína eiga að vera samsíða í lokin, þar sem axlir eru beint yfir mjöðmunum. Ef að axlalína liggur fjær holu en mjaðmalína í lokin er mjög erfitt að halda jafnvæginu.
Hvernig jafnvægi þitt er í lok golfsveiflunnar gefur til kynna hvernig til tókst. Gott jafnvægi og það eru miklar líkur á að öll sveiflan hafi verið í jafnvægi. Ef þú missir jafnvægið í lokin er líklegt að tempóið hafi verið ófullkomið og höggið ekki eins og til var ætlast.
DANS- ÆFING
Til þess að finna hvernig jafnvægið á að vera í toppi golfsveiflunnar og í lokin, reyndu eftirfarandi. Stoppaðu þegar kylfan er komin í efstu stöðu og lyftu vinstra fæti upp af jörðinni og finndu jafnvægi þungans yfir hægra fæti. Stígðu niður, og sveiflaðu í gegn, lyftu hægra fætinum um leið og líkaminn snýr sér í gegnum höggið. Þunginn og jafnvægið á núna að vera yfir vinstra fætinum. Ef þú getur gert æfinguna án þess að missa jafnvægið ertu á góðri leið með að öðlast golfsveiflu sem er í jafnvægi ,,alla sveifluna um kring’’.
EKKI KÍKJA
Finndu öruggan stað á æfingasvæðinu, og taktu venjulega sveiflu, augun opin og einbeittu þér að áfangastað kúlunnar(target) án þess að slá kúlu. Taktu síðan sömu sveiflu með lokuð augun. Að lokum stillir þú þér upp við boltann og slærð hann með lokuð augun.
Hvort sem þú trúir því eða ekki hef ég séð frábær högg sem slegin eru með lokið augu. Hvernig má það vera? Vegna þess að ef þú getur ekki séð flug boltans er mun auðveldara að skynja þungann og jafnvægið í sveiflunni. Þú finnur það um leið ef þú ert að sveifla kylfunni of hratt til þess að hafa góða stjórn. Þegar eitt skilningarvit er tekið í burtu skerpast hin, og jafnvægið kemur meira innanfrá.
Prófaðu æfinguna nokkrum sinnum og einbeittu þér að því að halda jafnvægi. Um leið og þú hefur náð jafnvægi með lokuð augu, reyndu þá að finna sama tempó með ,,ljósin kveikt’’(og beltin spennt).
Kveðja, Ragga.