Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 18. október 2010 | 11:25

Sláðu lengra með betri tækni!



Flestir kylfingar vilja slá lengra en þeir gera. Högglengd skiptir auðvitað máli þó svo að það sé vel hægt að skora vel og lækka forgjöfina án þess að slá langt. Það verður miklu auðveldara að lækka forgjöfina ef kylfingurinn nær að slá lengri högg. Eftir langt teighögg eiga kylfingar styttri vegalengd eftir inná flöt og það er auðveldara að koma kúlunni nær holunni með PW heldur en með 8 járni. Það geta verið margar ástæður fyrir því að menn slái ekki nógu langt og ætla ég að tala um þá algengustu.


Algeng orsök er sú að menn eru ekki að nota úlnliðsbrotið nógu vel og sú algengast er að menn eru að brjóta úlnliðina á vitlausum tímapunktum í sveiflunni. Flestir sem slá stutt eru búnir að brjóta úlnliðina til baka töluvert áður en að boltinn er hittur og þar með tapast töluverður kylfuhraði. Það er mikilvægt að ná svokallaðri „L“ stöðu í aftursveiflunni, þ.e.a.s. vinstri handleggur láréttur og beinn og kylfan lóðrétt. Þessi staða næst ekki nema að gripið sé rétt og að kylfingurinn brjóti úlnliðina rétt.
Þegar þessari „L“ stöðu hefur verið náð í aftursveiflunni er mikilvægt að halda þessum vinkli vinstri handar og kylfu sem allra lengst. Sá sem slær stutt byrjar niðursveifluna oft á því að rétta úr úlnliðunum og er þar af leiðandi búinn að rétta úr „L“ vinklinum töluvert áður en boltinn er hittur. Ef kylfingar eru búnir að losa um vinkilinn of snemma, eða kasta kylfunni í niðursveiflunni, er mesti krafturinn farinn úr sveiflunni því úlnliðsbrot sem er rétt tímasett í framsveiflunni gefur meiri kylfuhraða.


Hér er nokkuð rétt staða í niðursveiflu.


Hér er úlnliðsbroti lokið og mesti krafturinn farinn úr sveiflunni.


Æfingin
Mig langar að sýna ykkur góða æfingu til að ná tökum á úlnliðsbroti á réttum tíma. Takið PW og stillið ykkur upp fyrir venjulegt högg. Í stað þess að sveifla fulla sveiflu ætlið þið að sveifla mjög stutt aftur, en ná samt 90 gráðu vinkli með vinstri hönd og kylfu. Þegar þessari stöðu er náð skuluð þið slá boltann og hugsa um að ná sama vinkli fljótlega eftir að boltinn er hittur, þ.e.a.s. mæð hægri höndina lárétta og kylfuna lóðrétta.


Alls ekki sveifla lengra aftur í þessari æfingu


Reynið að ná þessari stöðu í lok sveiflunnar í þessari æfingu.


Ef þið náið tökum á þessari æfingu sjálf verðið þið örugglega vör við það hversu langt þið náið að slá með svona stuttri sveiflu. Þessi æfing ætti að tryggja það að úlnliðsbrotið á sér stað á réttum tímapunkti í sveiflunni og þegar hreyfingin er orðin vel æfð ætti ekki að vera mikið mál að framkvæma rétt úlnliðsbrot á réttum tímapunkti í fullri sveiflu og kylfuhraðinn ætti að aukast verulega og þar með högglengdin líka. Þessi æfing hefur hjálpað mörgum af mínum nemendum en að sjálfsögðu virkar hún best þegar menn framkvæma hana rétt. Ég skora á kylfinga að prófa þessa æfingu og ef hún virkar ekki fyrir þig getur PGA kennari hjálpað þér að framkvæma hana rétt.

Kveðja, Siggi Palli