Fréttir | þriðjudagur 7. september 2010 | 17:33

Monty ánægður með valið á Woods


Colin Montgomerie, fyrirliði Evrópu, er ánægður með að Corey Pavin, fyrirliði Bandaríkjanna, skuli hafa valið Tiger Woods í lið sitt fyrir Ryder-bikarinn sem fram fer í Wales í næsta mánuði. Pavin valdi fjóra kylfinga í lið sitt í dag en auk Woods fengu Zach Johnson, Stewart Cink og Rickie Fowler kallið.

Bandaríska liðið er frábær blanda af ungum og reyndum kylfingum. Ég er himinlifandi með að sjá Tiger Woods í liðinu. Ryder-bikarinn verður stærri viðburður fyrir vikið,“ sagði Monty.

Það er spurning hvort að Monty sjái fyrir sér að Bandaríkjamönnum vegni verr með Woods í liðinu því Bandaríkjamönnum hefur aðeins einu sinni tekist að vinna þegar Woods hefur verið með. Alls hefur Woods fimm sinnum verið með í Ryder-bikarnum en missti af keppninni árið 2008 á heimavelli vegna meiðsla. Þá báru Bandaríkjamenn sigur úr býtum eftir sigurgöngu Evrópumanna.

Talið er að Woods sé kominn með spilafélaga í Ryder-bikarnum og muni leika með Steve Stricker. Þeir mynduðu frábært teymi í Forsetabikarnum á síðasta ári og unnu alla sína leiki.

Myndir/golfsupport.nl