Fréttir | laugardagur 4. september 2010 | 13:18

Bjartur fór holu í höggi á Nesvelli


Bjartur Logi Finnsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Nesvellinum þann 31. ágúst síðastliðinn. Draumahöggið átti Bjartur á 2. braut en það er 120 metra braut.

Bjartur var við í keppni hjá Stullunum og reiknast vinahópnum til að þetta hafi verið 6512. upphafshögg á par-3 holu í mótum hjá þeim. Samkvæmt þeirri tölfræði ætti næsta hola í höggi í móti hjá þeim félögum að eiga sér stað þann 26. júní árið 2016.