Fréttir | föstudagur 3. september 2010 | 17:03

Búið að velja liðin í KPMG-Bikarnum


KPMG-Bikarinn 2010 fer fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 10.-11. september. Í KPMG-Bikarnum keppir úrvalslið höfuðborgarinnar gegn úrvalsliði landsbyggðarinnar.

Eimskipsstigalistinn ræður mestu um það hverjir spila í KPMG-Bikarnum en liðsstjórar hafa einnig val um leikmenn í tvö síðustu sætin.

Úrvalslið landsbyggðarinnar vann öruggan sigur á úrvalsliði höfuðborgarinnar í viðureigninni um Bikarinn árið 2009. Eftir fyrsta og aðra umferð leiddi lið landsbyggðarinnar með 9 vinningum gegn 3 vinningum. Það var því ljóst að á brattan var að sækja fyrir lið höfuðborgarinnar undir stjórn Sigurðar Péturssonar. Seinni daginn fóru fram tólf tvímenningar, leikar fóru þannig á endanum að lið landsbyggðarinnar vann með 17 vinningum gegn 7 og vann því Bikarinn 2009.

Það verður spennandi að sjá hvort lærisveinar Sigurðar Péturssonar nái fram hefndum í ár, það er þó örugglega ekki á dagskránni hjá Gylfa Kristinssyni að láta KPMG bikarinn af hendi.

Úrvalslið Landsbyggðarinnar:
Andri Már Óskarsson
Björgvin Sigurbergsson
Helgi Birkir Þórisson
Hlynur Geir Hjartarson
Magnús Lárusson
Rúnar Arnórsson
Sigurþór Jónsson
Nína Björk Geirsdóttir
Þórdís Geirsdóttir
Davíð Gunnlaugsson
Ólafur Hreinn Jóhannesson
Sigurpáll Geir Sveinsson

Gylfi Kristinsson liðsstjóri
Ingi Rúnar Gíslason aðst.liðsstjóri

Lið höfuðborgarsvæðisins:
Sigmundur Einar Másson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Arnar Snær Hákonarson
Haraldur Franklín Magnús
Guðjón Henning Hilmarsson
Stefán Már Stefánsson
Alfreð Brynjar Kristinsson
Nökkvi Gunnarsson
Andri Þór Björnsson
Berglind Björnsdóttir
Hansína Þorkelsdóttir

Sigurður Pétursson liðsstjóri
Pétur Óskar Sigurðsson aðst.liðsstjóri

Leikfyrirkomulag er þannig að spilaðir eru 24 leikir á tveimur dögum sem skiptast með svofelldum hætti: Fyrir hádegi á fyrri keppnisdegi skulu leiknir 6 fjórleikir. Eftir hádegi á fyrri keppnisdegi skulu leiknir 6 fjórmenningar. Seinni keppnisdag skulu leiknir 12 tvímenningar.

Myndir/Kylfingur.is