Fréttir | föstudagur 3. september 2010 | 11:24
Davies fær að fylgja liði Evrópu
Kylfingnum Rhys Davies frá Wales hefur verið boðið að vera hluti af Ryder-liði Evrópu sem leikur í Evrópu gegn Bandaríkjamönnum í Wales í byrjun október. Colin Montgomerie sér fyrir sér að Davies geti orðið einn af stóru kylfingunum í Evrópu á allra næstu árum og hefur því boðið honum að fylgjast með frá fremstu víglínu.
Nick Faldo gerði hið sama fyrir tveimur árum en þá bauð hann Martin Kaymer að vera með liðinu og það hefur svo sannarlega ræst úr Kaymer. Hann vann PGA-meistaramótið núna í ágúst og tryggði sér örugglega sæti í liði Evrópu.
„Colin vill að ég fái reynslu af því hvernig það er að keppa í Ryder-bikarnum. Það hefur hjálpað til við að komast yfir þau vonbrigði að vera ekki í liðinu,“ sagði Davies, sem er 25 ára gamall og á framtíðina fyrir sér.
Myndir/golfsupport.nl