Fréttir | föstudagur 3. september 2010 | 11:00
Vel heppnað afmælismót á Blönduósi
Golfklúbburinn Ós er 25 ára í ár og hélt afmælismót þann 28. ágúst sl. Eins og við greindum frá lék Heiðar Davíð Bragason Vatnahverfisvöll á 65 höggum eða fimm höggum undir pari vallarins í mótinu og bætti gamalt vallarmet sitt.
Heiðar Davíð, sem steig sín fyrstu golfspor á Blönduósi strákur og varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2005, Hann fékk sjö fugla, einn örn, og fjóra skolla á hringnum.
Þátttakendur í mótinu voru um fjörutíu og úrslit voru eftirfarandi.
1. Heiðar Davíð Bragason. GHD 41 punktur
2. Brynjar Bjarkason. GSS 34
3. Ingi Rúnar Gíslason GKJ 32
Konur, punktar án forgjafar.
1. Sigríður Elín Þórðardóttir. GSS 23 punktar
2. Guðrún Á. Jónsdóttir GÓS 17
3. Fanney G. Gunnarsdóttir GK 12
Opinn flokkur, punktar með forgjöf.
1. Guðmundur Brynjar Guðmundsson. GÓS 43 punktar
2. Kristófer Skúli Auðunsson. GÓS 34
3. Sigurður H. Sigurðsson. GR 33
4. Valgeir M. Valgeirsson. GÓS 33
5. Kristján Blöndal Jónsson. GÓS 33
6. Stefán Þ. Ólafsson. GÓS 31
Um kvöldið var haldið afmælishóf á Hótel Blönduósi þar sem verðlaunaafhending fór fram. Einnig voru veitt verðlaun fyrir holukeppni GÓS og úrslit voru eftirfarandi.
1. Jóhanna G. Jónasdóttir
2. Jón Jóhannsson
3. Hafsteinn Pétursson.
Hápunktur kvöldsins var þegar Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastóri GSÍ heiðraði félaga GÓS fyrir vel unnin störf í gegnum árin. Ari H. Einarsson og Jón Jóhannsson fengu gullmerki og Heiðar Davíð Bragason silfurmerki. Einnig var Höllu Bernódusdóttir færður blómvöndur á afmælinu en hún, Ari og Jón eru einu stofnfélagar klúbbsins sem hafa verið með frá upphafi.

--
