Fréttir | fimmtudagur 2. september 2010 | 15:28

Snorri og Ólafur unnu Vilhjálmsbikarinn


Snorri Jóhannsson úr GS og Ólafur Björnsson úr GK unnu Vilhjálmsbikarinn sem haldinn var í tíunda sinn í Leirunni sl. laugardag. Nærri hundrað keppendur mættu til leiks í sól og blíðu. Að vanda var leikið í tveggja manna liðum eftir svokölluðu „greensome“ fyrirkomulagi.

Eftir mótið var verðlaunaafhending og glæsilegt verðlaun afhent. Veitingar voru fyrir keppendur frá Langbest og Nýja bakaríinu. Fjölmargir styrkaraðilar komu að mótinu og sumir hafa verið með frá upphafi eins og Nettó í Reykjanesbæ.

Úrslit í mótinu urðu eftirfarandi:
1.sæti Snorri Jóhannesson og Ólafur Björnsson 45 punktar
2. sæti Halldór Guðjón Halldórsson – Einar Snorrason
3. sæti Örn Sveinbjörnsson – Samúel Karl Arnarsson

Næstur holu á 3. braut Halldór G Halldórsson 4.77 m
Næstur holu á 8. braut Gunnar Loagason 54 cm
Næstur holu 13. braut Rúnar Jónsson 4.02 m
Næstur holu á 16 Guðjón Kjartanson 43 cm

Lengsta upphafshögg á 14. holu Herborg Arnarsdóttir.