Fréttir | fimmtudagur 2. september 2010 | 08:45

Nökkvi er kylfingur vikunnar


Nökkvi Gunnarsson er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Þessi högglangi og flinki kylfingur úr Nesklúbbnum, leikur á Eimskipsmótaröðinni í golfi og varð Klúbbmeistari NK í fyrsta sinn í sumar. Hann er giftur Ellen Rut Guðmundsdóttir og starfar sem golfkennari hjá Nesklúbbnum. Við fegnum Nökkva til að svara nokkrum laufléttum spurningum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„14 ára, 1990. Fékk sumarvinnu á Nesvellinum.“

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Handbolta og fótbolta. Varð nokkrum sinnum Íslandsmeistari með KR í yngri flokkum og einu sinni í meistaraflokki, 1999. Á 10 landsleiki með U-17 og 10 mörk. Spilaði með meistaraflokki Gróttu í handbolta í nokkur ár.“

Hver eru helstu markmiðin?
„Að láta gott af mér leiða og vera góð fyrirmynd.“

Helstu afrek í golfinu?
„Klúbbmeistari NK 2010. Í 5. sæti ásamt öðrum í Íslandsmótinu í holukeppni 2010. Valinn í lið Höfuðborgarsvæðisins í Bikarnum 2009.“

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Ég og vinur minn Rúnar Geir Gunnarsson fórum í opið mót í Öndverðarnesi fyrir mörgum árum. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu og þá góð ráð voru dýr. Við höfðum einhverstaðar heyrt að gott væri að leika með uppþvottahanska í rigningu til þess að halda góðu gripi á kylfunni. Við vorum mættir tímanlega og ákváðum að bruna á Selfoss og kaupa uppþvottahanska. Tilkynntum öllum sem á vegi okkar urðu um áformin og settum svo upp hanskana á fyrsta teig. Nokkur fjöldi hafði safnast saman á veröndinni við skálann til að líta trixið augum. Rúnar átti blessunarlega teiginn og "sló" á undan. Þegar niðursveiflan var hálfnuð rann kylfan úr höndunum á honum eins og sápustykki, lenti á teignum og skoppaði þaðan í boltann sem rétt náði fram fyrir teigmerkin við mikinn fögnuð viðstaddra. Það þarf ekki að fjölyrða um það að ég tók niður uppþvottavettlingana áður en ég sló.
Síðan eru til margar sögur af klósettferðum Rúnars sem verða ekki tíundaðar hér.“

Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Fer til Florida í lok september.“

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Helsti veikleikinn liggur í hugarfarinu, fell oft í þá gryfju að óttast mistök í staðinn fyrir að einblína á það sem ég ætla að gera. Styrkleikarnir liggja í því að ég get verið mjög skarpur með fleygjárnum á góðum degi og á það til að pútta fáránlega vel inn á milli.“

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir (innlendur og erlendur) og af hverju?
„Innlendur er Birgir Leifur. Frábær kylfingur og frábær fyrirmynd fyrir aðra kylfinga innan sem utan vallar. Erlendur er Phil Mickelson. Skemmtilegur karakter sem brosir mikið og gefur af sér til áhangenda. Ekki skemmir fyrir að hann spilar gríðarlega sókndjarft golf og tekur mikið af áhættum.“

Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Það er nú sér-íslensk regla sem var sett á fyrir tímabilið á GSÍ mótaröðinni um að ekki má taka æfingapútt á flötum milli holna. Að mínu mati algjörlega fáránleg regla.“

Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Á unglingsárunum komst lítið annað að en að verða atvinnumaður í fótbolta. Myndi velja golfið í dag.“

Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Liverpool. Langbesta liðið þegar ég var að alast upp. Ekkert annað sem kom til greina á þeim tíma, svo hélt pabbi líka með þeim.“

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
„Tvisvar sinnum sinnum.“

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Þorgeir Guðmundsson Íslandsmeistari í pílukasti.“

Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
„Ekki mikið, er þó farinn að reyna að nota alltaf sama grínmerkið.“

Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Birgir Leifur er bestur og Guðmundur Ágúst er efnilegastur.

Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Skemmtilegast er að spila með mömmu. Mér finnst ekkert leiðinlegt við golf.“

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Eftirminnilegt er þegar ég lék í móti á East Bay CC í Largo á Florida árið 2002. Fyrirkomulagið á þessum mótum er á þann veg að spilaður er höggleikur og skinnaleikur. Ég var að mæta í fyrsta sinn og hafði aðspurður sagst vera þokkalegur spilari og fékk að vera með gegn því að spila á 0 í forgjöf. Fyrstu fimm holurnar hjá mér voru á þennan veg: fugl, fugl, fugl, hola í höggi, fugl. Sem sagt 6 högg undir pari eftir 5 holur og þegar upp var staðið einhverjum þúsund dollurum ríkari. Ekki voru allir á eitt sáttir með þennan hustler frá Íslandi. Ég hef síðan spilað með þessum hópi á hverju ári síðan og á orðið marga góða kunningja.“

Fylgist þú mikið með golfi?
„Mjög mikið. Horfi á allt sem ég hef tíma í. Bíð í ofvæni eftir Skjár-Golf stöðinni.“

Staðreyndir:
Nafn: Nökkvi Gunnarsson
Klúbbur: NK
Forgjöf: 1
Golfpokinn: Ping i3 3-PW, MD fleygjárn 52,56 0g 60. Titleist R905 Driver og Mizuno 3 tré. Yes Pútter. Ætla að skipta þessu öllu út núna í haust nema pútternum.
Golfskór: Adidas
Golfhanski: Taylor Made
Markmið í golfinu: Hafa gaman og láta gott af mér leiða í kennslunni
Fyrirmynd: Ragna Ingólfs
Uppáhalds matur: Lambakjöt
Uppáhalds drykkur: Sódavatn
Ég hlusta á: Útvarpið
Besti völlurinn: Nesið
Besta skor (hvar): 66 högg á Hvaleyrinni tvisvar og sama skor á Hellu í stigamóti.
Besta vefsíðan: Kylfingur.is, alveg satt.
Besta blaðið: Þjóðviljinn
Besta bókin: The Impact Zone
Besta bíómyndin: Er reyndar alltaf að skipta, nú er það The Blind Side. Allar amerískar háskólamyndir.

Myndir/Kylfingur.is