Fréttir | miðvikudagur 1. september 2010 | 18:58

Rory sigurviss fyrir Ryder-bikarinn


Norður-Írinn Rory McIlroy er þess fullviss að Evrópa muni fara með sigur af hólmi í Ryder-bikarnum í október næstkomandi. McIlroy er að leika í fyrsta sinn í bikarnum og telur að fyrirliðinn hafi tekið rétta ákvörðun þegar hann valdi þá Edoardo Molinari, Luke Donald og Padraig Harrington auk þeirra níu sem spiluðu sig inn í liðið.

Monty stóð frammi fyrir erfiðu vali. Hann hafði úr fimm kylfingum að velja og hvað sem hann hefði valið, hefði verið rétt val. Við erum það sterkir. Paul Casey og Justin Rose voru óheppnir að missa af keppninni í ár. Það sýnir hversu sterkir við erum þegar þeir komast ekki í liðið,“ segir Rory sem er 21 árs og hefur átt góðu gengi að fagna í ár.

Ég er þess fullviss um að við náum bikarnum aftur af Bandaríkjamönnum,“ sagði Rory en hann verður meðal keppenda á Deutsche Bank mótinu á PGA-mótaröðinni sem hefst á morgun.

Myndir/golfsupport.nl