Fréttir | miðvikudagur 1. september 2010 | 11:22
Donald gagnrýnir stigakerfi Evrópu
Englendingurinn Luke Donald gagnrýnir stigakerfi Evrópu fyrir Ryder-bikarinn en hann var einn þeirra sem fékk val frá fyrirliðanum Colin Montgomerie í liðið. Hann bendir á að kylfingar sem eru ofarlega á heimslistanum í golfi séu ekki að fá sæti í liðinu vegna þess að þeir leiki aðallega í Bandaríkjunum en ekki í Evrópu.
„Þetta er líklega ótrúlegasta val í Ryder-bikarinn frá upphafi. Það voru kylfingar á topp-10 á heimslistanum sem vissu ekki hvort þeir fengju sæti eða ekki. Einn af þeim var Paul Casey,“ segir Donald en Casey er í 8. sæti heimslistans.
Ryder-listi Evrópu virkar þannig að fjórir efstu kylfingar Evrópu á heimslistanum fá sjálfkrafa sæti en fimm stigaefstu kylfingarnir á Evrópumótaröðinni fá svo hin fimm öruggu sætin í liðinu.
Donald telur að Evrópa þurfi að endurskoða stigakerfið. „Við þurfum að líta gagnrýnum augum á stigakerfið. Golf er að verða alþjóðleg íþrótt en ég skil að þeir vilji verja Evrópumótaröðina. Hins vegar vilja bestu evrópsku kylfingarnir leika gegn þeim bestu í heimi í hverri viku. Það á ekki að refsa þeim fyrir það.“
Margir hafa gagnrýnt að kylfingar fái ekki stig fyrir frammistöðu sína á PGA-mótaröðinni og það kom í veg fyrir að Justin Rose, sem vann tvö PGA-mót í sumar, náði sæti í liðinu. Alls eru fimm nýliðar í evrópska liðinu sem gæti sett strik í reikninginn.
Myndir/golfsuppprt.nl