Fréttir | miðvikudagur 1. september 2010 | 09:48

Norman snýr aftur eftir meiðsli í Sviss


Ástralinn Greg Norman, eða Hvíti hákarlinn eins og hann er stundum kallaður í golfheiminum, snýr aftur á morgun eftir langvinn meiðsli en hann hefur verið frá keppni í næstum ár eftir aðgerð á öxl. Hann er meðal keppenda Omega European Masters mótinu sem fram fer í Sviss á Evrópumótaröðinni.

Norman tók síðast þátt í mótinu árið 2005 og verður eitt af þeim nöfnum sem munu draga að sér mesta athygli. Einnig munu þeir Miguel Angel Jimenez og Edoardo Molinari leika í mótinu en þeir eru einu kylfingarnir í nýskipuðu lið Evrópu í Ryder-bikarnum sem leika í mótinu.

Jimenez er að taka þátt í mótinu í 22. skiptið í röð en þessi skemmtilegi Spánverji hefur leikið vel að undanförnu og tryggði sér lokasætið í liði Evrópu í síðustu viku. Molinari fékk val frá Colin Montgomerie í lið Evrópu eftir að hann vann Johnnie Walker Classic mótið um síðustu helgi. Sigurvegarinn á Opna breska meistaramótinu, Louis Oosthuizen, verður einnig meðal keppenda.

Hér má sjá þá kylfinga sem leika saman í mótinu

Myndir/golfsupport.nl