Fréttir | þriðjudagur 31. ágúst 2010 | 21:04

Reglum breytt eftir frávísun Furyk


Framkvæmdastjóri PGA-mótaraðarinnar, Tim Finchem, tilkynnti í dag breytingar á reglum hvað varðar þátttöku kylfinga í ProAm-mótum. Kylfingurinn Jim Furyk fékk frávísun úr Barclays mótinu í síðustu viku fyrir að mæta of seint á teig í ProAm mótinu sem fram fór miðvikudag og var frávísunin harðlega gagnrýnd af öðrum kylfingum og golfsérfræðingum.

Nú hefur reglan verið afnumin tímabundið og í stað hennar verður kylfingum sem mæta of seint á teig refsað með þeim hætti að þeir þurfa að skuldbinda sig til frekari starfa fyrir samtarfsaðila mótaraðarinnar. Missi kylfingur alfarið af ProAm móti fær hann frávísun úr mótinu nema að hann geti komið með haldbæra skýringu á fjarveru sinni.

Finchem hefur beðið leikmannaráð PGA-mótaraðarinnar um að meta núverandi reglur sem tengjast ProAm mótum en tryggja um leið að kylfingar virði skuldbindingar sínar um að mæta í þessi mót. Umræða um málið mun fara fram á stjórnarfundi í nóvember næstkomandi.

Myndir/golfsupport.nl: Tim Finchem, á efri myndinni, tilkynnti breytingar á reglum í dag. Jim Furyk fékk frávísun í síðustu viku fyrir að sofa yfir sig fyrir ProAm mót.