Fréttir | þriðjudagur 31. ágúst 2010 | 14:24
Frábært gengi Langer heldur áfram
Þjóðverjinn Berhard Langer heldur áfram að leika vel og vann um helgina sitt fimmta mót í ár á bandarísku öldungamótaröðinni þegar hann bar sigur úr býtum á Boeing Classic mótinu. Langer lék á 18 höggum undir pari og varð þremur höggum betri en Nick Price frá Suður-Afríku.
Langer hefur verið frábær í ár og vann tvö risamót öldunga í röð í sumar. Hann telur sig vera að leika eitt sitt besta golf á ferlinum.
„Í augnablikinu er ég líklega að leika mitt besta golf á ferlinum. Ég tel að golfsveiflan sé betri og bý yfir meiri tækni. Kylfusveinninn minn segir að ég hafi aldrei drævað svona vel,“ sagði Langer.
Hér má sjá lokastöðuna í mótinu
Myndir/golfsupport.nl: Bernhard Langer hefur verið heitur í ár.