Fréttir | mánudagur 30. ágúst 2010 | 20:53

Wie vann sitt annað LPGA-mót í Kanada


Bandaríski kylfingurinn Michelle Wie fór með sigur af hólmi á Opna kanadíska mótinu á LPGA-mótaröðinni sem lauk í gær og vann þar með sinn annan sigur á ferlinum. Hún lék samtals á tólf höggum undir pari í mótinu og fékk fyrir vikið um 40 milljónir króna í vasann.

Fjórir kylfingar urðu jafnir í öðru sæti en þær Jiyai Shin frá Suður-Kóreu, Kristy McPherson, Jee Lee Young og hin norska Suzann Pettersen, sem átti titil að verja í mótinu léku allar á níu höggum undir pari.

Mikils var vænst af Wie sem þótti gríðarlega efnilegur kylfingar frá unga aldri og náði m.a. annars að komast í gegnum úrtökumót fyrir Opna bandaríska áhugamannamótið þegar hún var aðeins tíu ára gömul, sem gerði hana að yngsta keppenda í mótinu frá upphafi.

Meiðsli á undanförnum árum hafa gert henni erfitt um vik en virðist hún nú loksins vera að finna sitt rétta andlit. Wie vann sinn fyrsta sigur á mótaröðinni í nóvember síðastliðnum og er að komast á skrið.

Lokastaðan í mótinu

Myndir/golfsupport.nl: Michelle Wie er að rétta úr kútnum.