Fréttir | sunnudagur 29. ágúst 2010 | 21:25

Hlynur Geir stigameistari í annað sinn


Hynur Geir Hjartarson, kylfingur úr Keili, varð í dag stigameistari karla á Eimskipsmótaröðinni í golfi. Hann varð í 4. sæti í Egils Gull mótinu sem lauk á Hellu í dag og það dugði honum til að innbyrða stigameistaratitilinn í annað sinn en Hlynur varð einnig stigameistari árið 2008.

Hann lék vel í sumar og vann meðal annars Canon mótið á Urriðavelli. Hann sýndi mikinn stöðugleika í sumar og varð m.a. alltaf á meðal tíu efstu kylfinga í öllum mótum sumarsins og varð einnig í þriðja sæti í Vestmanneyjum. Alls hlaut Hlynur 6131.88 stig og varð tæpum fjögur hundruð stigum á undan Sigmundi Einar Mássyni úr GKG sem varð annar á listanum en hann lenti í öðru sæti á Hellu í dag.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni bar öruggan sigur úr býtum á stigalista kvenna en hún vann þrjú mót og varð í öðru sæti í einu móti. Hún hafði tryggt sér stigameistaratitilinn fyrir mótið um helgina en hún var ekki með þar sem hún er í námi í Bandaríkjunum.

Hér að neðan má sjá lokastöðuna á stigalistanum en listann í heild má sjá hér.

Lokastaða efstu kylfinga á stigalista karla:

1 Hlynur Geir Hjartarson GK 6131.88
2 Sigmundur Einar Másson GKG 5634.38
3 Kristján Þór Einarsson GKJ 4905.00
4 Þórður Rafn Gissurarson GR 4587.50
5 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 4056.25
6 Birgir Leifur Hafþórsson GKG 4000.00
7 Arnar Snær Hákonarson GR 3910.38
8 Haraldur Franklín Magnús GR 3506.25
9 Guðjón Henning Hilmarsson GKG 3459.12
10 Axel Bóasson GK 3295.00
11 Stefán Már Stefánsson GR 2632.50
12 Sigurþór Jónsson GK 2568.75
13 Rúnar Arnórsson GK 2504.38
14 Tryggvi Pétursson GR 2440.62
15 Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 2327.50

Lokastaða efstu kylfinga á stigalista kvenna:
1 Valdís Þóra Jónsdóttir GL 7282.50
2 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 5885.00
3 Signý Arnórsdóttir GK 4382.50
4 Tinna Jóhannsdóttir GK 4362.50
5 Nína Björk Geirsdóttir GKJ 4185.00
6 Þórdís Geirsdóttir GK 3981.25
7 Berglind Björnsdóttir GR 3795.00
8 Ingunn Gunnarsdóttir GKG 3679.17
9 Heiða Guðnadóttir GKJ 3543.75
10 Eygló Myrra Óskarsdóttir GO 3269.17
11 Hansína Þorkelsdóttir GKG 2925.00
12 Sunna Víðisdóttir GR 2400.00
13 Ingunn Einarsdóttir GKG 2302.50
14 Karen Guðnadóttir GS 2077.50
15 Íris Katla Guðmundsdóttir GR 1815.00

Myndir/Kylfingur.is