AT&T Pebble Beach National Omega Dubai Desert Classic ISPS Handa Women's Australian Open
Fréttir | sunnudagur 29. ágúst 2010 | 07:27
Skotinn Martin Laird er efstur á Barclays mótinu á PGA-mótaröðinni fyrir lokahringinn en hann er samtals á tólf höggum undir pari eftir að hafa leikið þriðja hringinn á sex höggum undir pari. Hann hefur þriggja högga forystu á þá Dustin Johnson og Jason Day en fleiri þekktir kylfingar eru svo í næstum sætum þar á eftir.
Johnson lék best allra í gær, á 64 höggum eða sjö höggum undir pari Ridgewood vallarins. Justin Rose var einnig að leika vel en hann lék á 65 höggum í gær og Ian Poulter lék á 66 höggum.
Tiger Woods á litla sem enga möguleika á sigri eftir að hafa leikið þriðja hringinn á 72 höggum eða einu höggi yfir pari og er þar með dottinn niður í 28. sæti en var efstur eftir fyrsta hring.
Staðan í mótinu
Mynd/golfsupport.nl: Martin Laird er efstur.