Fréttir | laugardagur 28. ágúst 2010 | 20:48
Molinari bræðurnir efstir í Skotlandi
Árið hefur verið frábært hjá bræðrunum Francesco og Edoardo Molinari allt frá því að þeir stóðu uppi sem sigurvegarar á Heimsmeistaramóti þjóða í nóvember síðastliðinum. Þeir hafa svo leikið frábærlega í ár og skipa nú efstu tvo sætin á Johnnie Walker Championship mótinu sem fram fer í Skotlandi.
Þeir munu leika saman í lokaráshópnum á morgun og munu berjast um sigurinn en Francesco leiðir mótið á tíu höggum undir pari en Edoardo er á níu höggum undir pari. Kylfingar eins og Oliver Wilson, Simon Dyson, Gregory Bourdu og Julien Guerrier eru svo á átta höggum undir pari og því verðu mikil spenna í mótinu.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem bræðurnir leika saman í lokaráhóp og ef Edoardo fer með sigur af hólmi, má gera ráð fyrir að hann verði valinn í Ryder-liðið, sem val frá Colin Montgomerie og Monty viðurkennir að það myndi bæta enn á hausverkinn ef Edoardo myndi vinna mótið.
„Það myndi gera hausverkinn ennþá verri. Það er þó með betri hausverkjum sem hægt er að fá. Ég er með stráka sem eru í formi og eru að standa sig vel. Þetta verður spennandi,“ segir Monty sem tilkynnir lið sitt annað kvöld.
Staðan í mótinu

Mynd/golfsupport.nl