Fréttir | laugardagur 28. ágúst 2010 | 17:23

Sunna leiðir í kvennaflokki á Hellu


Sunna Víðisdóttir, kylfingur úr GR, er í efsta sæti í kvennaflokki eftir fyrsta hringinn á Egils Gull mótinu sem fram fer á Eimskipsmótaröðinni á Hellu. Hún lék fyrsta hringinn á 73 höggum eða þremur höggum yfir pari.

Hún hefur þriggja högga forystu á Berglindi Björnsdóttur úr GR og Heiðu Guðnadóttur úr GKj. Sunna fékk þrjá fugla, fjóra skolla og einn tvöfaldan skolla á hringnum í dag en hún er aðeins 16 ára gömul og leikur í telpnaflokki á Arion-bankamótaröð unglinga. Hún hóf að leika golf fyrir nokkrum árum og hefur náð góðum tökum á íþróttinni á skömmum tíma.

Staðan í mótinu

Myndir/Kylfingur.is