Fréttir | laugardagur 28. ágúst 2010 | 11:51

Egils Gull mótið á Hellu hófst í morgun


Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni, Egils Gull mótið, hófst í morgun á Strandarvelli á Hellu. Mikil spenna er í karlaflokki enda eru þar sem nokkrir kylfingar eiga góðan möguleika á að standa uppi sem stigameistarar að móti loknu og því nokkuð undir.

Aðstæður eru góðar á Strandarvelli, lítill vindur en nokkuð kalt enda er haustið handan við hornið. Völlurinn skartar sínu fegursta og samkvæmt þeim kylfingum sem blaðamaður Kylfings.is hefur rætt við, þá hefur völlurinn sjaldan verið betri.

Skor er uppfært á þriggja holu fresti og því geta golfáhugamenn fylgst grannt með skori kylfinga. Hægt er að sjá stöðuna í mótinu með að smella hér.

Mynd/Kylfingur.is