Fréttir | fimmtudagur 26. ágúst 2010 | 15:14
Korpunni snúið við í næstu viku
Korpúlfsstaðavelli verður snúið við næstkomandi mánudag og hefja kylfingar því leik af 10. teig og verður þannig fyrirkomulag það sem eftir lifir golftímabilsins. Ágúst Jensson, vallarstjóri á Korpúlfsstaðavelli ritar tilkynningu til félagsmanna á heimasíðu GR í dag þar sem hann fer yfir stöðuna.
„Nú er sá tími kominn að kylfingar hafa minni tíma til golfleiks og æ fleiri fara níu holur og viljum við því beina þeirri traffík á efri hlutann þar sem hann tekur betur við álagi en sá neðri sem mun þá fá kærkomna hvíld,“ skrifar Ágúst meðal annars.
Á mánudaginn verður einnig farið í það að tappagata nokkrar flatir á Korpunni. Að auki verða allar flatir sandaðar í kjölfarið en það er þó háð því að veður verði þurrt. Kylfingar eru einnig minntir á að nú er sá tími þegar vellir landsins eru sérstaklega viðkvæmir og því mikilvægt að laga bolta- og kylfuför.
Myndir/Kylfingur.is