Fréttir | fimmtudagur 26. ágúst 2010 | 14:07

Karen Guðnadóttir er kylfingur vikunnar


Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hún hefur verið afar sigursæl í stúlknaflokki á Arion-banka mótaröðinni og varð bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni ásamt því að verða klúbbmeistari GS. Hún er 18 ára gömul og er yngri systir Heiðu Guðnadóttur sem leikið hefur á mótaröðinni á undanförnum árum. Við fengum Karen til að svara nokkrum spurningum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Ég prófaði fyrst golf úti í garði heima árið 2004. Þá spurði ég Heiðu systir og pabba hvernig þeim gæti fundist þetta skemmtilegt. Ári seinna fór ég á golfnámskeið og smitaðist af golfsýkinni.“

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Já, og er enn í Badmintoni.“

Hver eru helstu markmiðin?
„Í golfinu er það að hafa alltaf gaman og verða betri með hverju árinu. Því betri sem ég verð því skemmtilegra.“

Helstu afrek í golfinu?
„Ég ætla að nefna þetta sumar. Að ná að vinna eitt stigamót á unglingamótaröðinni, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni, allt í fyrsta sinn og á sama ári er ótrúlegt og er einnig efst á stigalistanum. Þetta sumar er búið að vera frábært.“

Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Við fjölskyldan förum til Flórída um jólin. Þetta verður auðvitað líka verslunarferð en golfsettin eru hluti af fjölskyldunni.“

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Styrkleikinn minn myndi ég segja að sé að halda mér í leik. Ég er líka ágæt í því að koma mér úr vandræðum. Ég er búin að bæta vippin gríðarlega á síðustu tveimur árum en áður var ég alltaf eins og byrjandi í þeim. Svo get ég líka verið mjög ákveðin og það hjálpar mér mikið. Veikleikar mínir eru m.a. innáhöggin. Ég á það til að hitta fáar flatir á hring en vippin koma þá á móti. Svo á ég það líka til að svekkja mig of mikið og hugsa um mistökin á seinustu holu eða eitthvað í þá átt.“

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
„Uppáhalds erlendi kylfingurinn hefur yfirleitt verið Phil Mickelson. Hann brosir mikið til áhorfenda og er alltaf þannig þótt honum gangi illa. Það er sem ég ætla að gera.“

Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Einni? Ég myndi vilja breyta meira en það. Til dæmis eru margar golfreglur flóknar og enginn kann þær allar. Það myndi flýta leik ef þær væru einfaldari og færri. Reglan sem ég vel er að það ætti alltaf að leyfa að frídroppa úr torfufari, eða allavega á braut.“

Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Ég á nú meiri möguleika í golfið sko.“

Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Ekkert, ég hef engan áhuga á að horfa á fótbolta.“

Hefur þú farið holu í höggi eða verið nálægt því?
„Já verið nálægt því nokkrum sinnum. Ég vil ekki spila mikið ein lengur því það er ekki gaman að lenda í því að vera svo með ekkert vitni.“

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Klárlega Karen Sævars.“

Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Pottþétt Birgir Leifur. Hann er allavega búin að ná lengst. Það eru hins vegar margir efnilegir. Ég ætla að nefna Sunnu Víðisdóttur því hún hefur náð góðum tökum á íþróttinni mjög hratt og er orðin mjög góð.“

Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Leiðinlegast eru þessar flóknu og stundum tilgangslausu reglur. Stundum veðrið líka. Skemmtilegast er félagsskapurinn. Svo býður golfið upp á margt. Maður getur valið sér að vera bara í klúbbi og leika sér eða eitthvað meira. Þessi íþrótt á við allan aldur og það er gaman að spila með allskonar fólki.“

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Ég held að þetta sumar verði mér alltaf eftirminnilegt.“

Fylgist þú mikið með golfi?
„Ég fylgist eitthvað með erlendu golfi en mun meira íslensku. Mér finnst miklu skemmtilegra að horfa á íslenska golfið því þar þekkir maður fólkið og vellina.“

Staðreyndir:
Nafn: Karen Guðnadóttir
Klúbbur: GS
Forgjöf: 4,5
Golfpokinn: Ping G-10 járn, Cleveland fleygjárn, Copra driver, Ping G-10 hálfviti og Ping G-2 pútter,
Golfskór: Oftast FootJoy
Golfhanski: FootJoy á báðum höndum
Markmið í golfinu: Að hafa alltaf áhugann á æfingum og ná stærsta titli Íslands.
Fyrirmynd: Fjölskyldan
Uppáhalds matur: Kjötsúpa
Uppáhalds drykkur: Heilsusafi.
Ég hlusta á: Stefán
Besti völlurinn: Urriðavöllur og Leiran
Besta skor (hvar): Leiran 75 og 73 í Ventura
Besta vefsíðan: B2.is
Besta blaðið: Golf á Íslandi
Besta bókin: Unglingabækur
Besta bíómyndin: Inceptinon, 2012 og Mamma Mia.

Myndir/Kylfingur.is