Fréttir | miðvikudagur 25. ágúst 2010 | 21:53

Úrslit úr boðsmóti Audda og Sveppa


Boðsmót Audda og Sveppa fyrir Vildaráskrifendur Stöðvar 2 var haldið á Garðvelli sunnudaginn 15 ágúst sl. Allt tóku þátt 44 unglingar þátt í mótinu. Keppt var í tveimur aldursflokkum, flokki 13-16 ára og 17-20 ára.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki, nándarverðlaun voru veitt á par-3 holum og dregið úr skorkortum í mótslok. Veðurskilyrði voru ekki þau bestu til golfiðkunnar þann dag sem mótið var haldið og var því ákveðið að leika eingöngu 10 holur. Að móti loknu bauð svo Vildarklúbbur Stöðvar 2 kylfingum uppá léttar veitingar.

Úrslit mótsins má sjá hér að neðan:
Flokkur 17-20 ára
1. Gunnar Snær Gunnarsson GKG 17 punktar
2. Ari Magnússon GKG 17 punktar
3. Sindri Snær GKG 17 punktar

Flokkur 13-16 ára
1. Bragi Arnarson GR 23 punktar
2. Arnar Ingi Njarðarson GR 22 punktar
3. Sveinn Mar Smárason GL 19 punktar