Fréttir | miðvikudagur 25. ágúst 2010 | 09:44

Andlát Blasberg úrskurðað sem sjálfsvíg


Niðurstaða virðist liggja fyrir varðandi andlát kylfingsins Ericu Blasberg sem rannsakað hefur verið í sumar en hún fannst látin á heimili sínu þann 9. maí síðastliðinn. Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglu mun Blasberg hafa tekið eigið líf.

Blasberg, sem lék í sex ár á LPGA-mótaröðinni, fannst látin á heimili sínu og var það læknir hennar, Dr. Thomas Hess sem kom að henni og tilkynnti lögreglu. Hann fjarlægði hins vegar sjálfsvígsbréf sem Blasberg ritaði og því var málið jafnvel talið morðmál í upphafi.

Hess játaði að hafa fjarlægt sjálfsvígsbréfið við skýrslutökur og telst málið því upplýst en það hefur fengið mikla umfjöllun í bandarískum fjölmiðlum. Hess á yfir höfði sér allt að hálfs árs fangelsisvist fyrir að vinna gegn réttvísinni með athæfi sínu.

Myndir/golfsupport.nl: Mál Ericu Blasberg telst upplýst.