Fréttir | þriðjudagur 24. ágúst 2010 | 18:31
Tímabilið líklega búið hjá Weir
Kanadíski kylfingurinn Mike Weir mun að öllum líkindum ekki leika meira golf á þessu ári eftir að í ljós kom að hann greindist með rifið liðband í hægri olnboga. Hann ætlar að hvíla sig næstu misseri og vonast til að sleppa við aðgerð.
Weir hefur glímt við þessi meiðsli í nokkurn tíma og kvartaði yfir meiðslum í olnboga fyrir Opna breska meistaramótið í júlí. Það var eftir samtal við kollega sinn á PGA-mótröðinni, Scott McCarron, að Weir ákvað að leita til læknis og meiðslin urðu ljós.
McCarron lenti í svipuðum meiðslum á síðasta ári og var frá í nokkurn tíma. Það hefur gengið upp og ofan hjá Weir á þessari leiktíð en hans besti árangur kom þegar hann lenti í 6. sæti á Bob Hope Classic mótinu. Átta sinnum hefur honum mistekist að komast í gegnum niðurskurðinn.
Myndir/golfsupport.nl