Fréttir | þriðjudagur 24. ágúst 2010 | 11:24
Faldo keppir í Japan í nóvember
Sir Nick Faldo verður meðal keppenda á Handa Cup Senior Masters mótinu sem far fer í Janpan 25.-28. nóvember næstkomandi. Faldo verður einn af stærstu stjörnum mótsins en þetta er í fyrsta sinn sem evrópska öldungamótaröðin mætir til Japan.
„Ég er glaður yfir að tilkynna þátttöku mína í mótið,“ segir Faldo. „Ég hlakka til að keppa í mótinu ásamt bestu öldungum Evrópu og japönskum kylfingum. Ég er þakklátur þeim sem standa að mótinu en einnig styrktaraðilum sem styðja einnig Faldo Series Asia.“
Faldo hefur staðið að mótaröðum fyrir unga og efnilega kylfinga og hér á Íslandi hefur m.a. verið keppt á Faldo Series mótaröðinni. Hann herjar nú á markað í Asíu og mætir því ferskur til leiks í Japan í nóvember.
Myndir/golfsupport.nl