Fréttir | mánudagur 23. ágúst 2010 | 20:53

Woods staðfestir skilnað


Tiger Woods tilkynnti í dag á heimasíðu sinni að skilnaður hans við Elin Nordegren væri formlega genginn í gegn. Saman eiga þau tvö börn en stefnt hefur í að skilnað síðan að ljóst var um stórfellt framhjáhald Woods sem skók golfheiminn í desember á síðasta ári.

Í sameiginlegri yfirlýsingu sögðu Woods og Nordegren: „Við erum leið yfir að hjónabandi okkar skuli vera lokið og óskum við hvort öðru alls hins besta í framtíðinni. Þó við séum ekki lengur gift, þá eigum við saman tvo yndisleg börn og hamingju þeirra hefur alltaf verið okkur forgangsmál. Um leið og við komumst að þeirri ákvörðun að skilja, þá höfum við einsett okkur að tryggja þeirra framtíð,“ sagði m.a. í yfirlýsingunni.

Woods snýr aftur á golfvöllinn í vikunni þegar hann tekur þátt í Barclays mótinu á PGA-mótaröðinni. Hann hefur verið nokkuð frá sínu besta eftir að hann tók sér fimm mánaða hlé frá keppni í desember og spurning hvort hann fari að ná fyrri styrk úr því að ýmis vandamál í einkalífinu eru úr sögunni.

Myndir/golfsupport.nl