Fréttir | fimmtudagur 19. ágúst 2010 | 15:39
Pavin hrósar Johnson hásterkt
Fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum, Corey Pavin, hrósar Dustin Johnson fyrir hvernig hann höndlaði vonbrigðin eftir PGA-meistaramótið um síðastliðna helgi. Johnson fékk tvo högg í víti fyrir að leggja kylfu í sandinn áður en hann sló öðru höggi sínu á 18. brautinni úr glompu sem Johnson áttaði sig ekki á að væri glompa. Hann missti í kjölfarið tækifæri á sigri í mótinu.
Pavin segir að dómurinn hafi verið réttur en telur að Johnson eigi eftir að eflast við mótlætið sem gæti komið Bandaríkjunum til góða í Ryder-bikarnum. „Þetta var afar óheppilegt atvik en ég held að dómurinn hafi verið réttur,“ sagði Pavin. „Það sem mun varðveitast í minningunni er hvernig Johnson meðhöndlaði málið.“
Johnson hefur upplifað mikil vonbrigði í risamótunum á þessu ári. Hann var í lokaráshópnum á Opna bandaríska meistaramótinu en fór þar illa með gott tækifæri og lék lokahringinn á 82 höggum. Núna um helgina fór hann aftur með gott tækifæri en Pavin telur að þurfi ekki að rífa hann upp úr svartsýni.
„Ég held að þurfi frekar að róa hann niður ef eitthvað er. Ég hef fylgst vel með honum í sumar og séð hvað hann hefur lært mikið af vonbrigðunum í risamótunum. Hann er ungur kylfingur, er snöggur að læra og það líkar mér.“
Myndir/golfsupport.nl: Dustin Johnson hefur upplifað mikil vonbrigði í risamótum ársins.
