Fréttir | fimmtudagur 19. ágúst 2010 | 15:19

Mikilvæg vika hjá Jimenez í Tékklandi


Spánverjinn Miguel Angel Jimenez, sem jafnan er kallaður vélvirkinn fyrir áhuga sinn á bílum, þarf að standa sig vel í Opna tékkneska mótinu sem hófst á Evrópumótaröðinni í dag. Sem stendur er Jimenez í áttunda sæti Ryder-lista Evrópu en níu efstu kylfingarnir fá sjálfkrafa sæti í liðinu.

Jimenez lék fyrsta hringinn í mótinu á 71 höggi eða einu höggi undir pari vallarins og er því í ágætri stöðu og hann veit sjálfur að mótið gæti skipt sköpum.

Þetta er gríðarlega mikilvæg vika fyrir mig því ég er á mörkum þess að vera inn eða út úr liðinu,“ segir Spánverjinn sem verður ekki með í Johnnie Walker Championship mótinu á Gleneagles vellinum í næstu viku en eftir það mót verður ljóst hvaða kylfingar fá sæti í liði Evrópu.

Þetta er stór vika fyrir marga kylfinga en þetta er mitt síðasta tækifæri til að tryggja mig inn í liðið,“ sagði Jimenez sem er í 24. sæti eftir fyrsta hring þegar margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik.

Myndir/golfsupport.nl