Fréttir | miðvikudagur 18. ágúst 2010 | 21:16
Kim þarf að sanna sig fyrir Pavin
Bandaríski kylfingurinn Anthony Kim hefur lítinn tíma til að heilla Corey Pavin, fyrirliða Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum. Kim ákvað að fara í aðgerð á þumalfingri í maí til þess að verða örugglega búinn að ná sér að fullu fyrir Ryder-bikarinn sem leikinn verður á Celtic Manor vellinum í byrjun október.
Alls er óvíst hvort að Kim verði í liði Bandaríkjanna, sem mætir því evrópska, því hann náði ekki öruggu sæti og er mest um að kenna fjarveru hans á undanförnum mánuðum. Hann þarf því að treysta á að Pavin velji hann í liðið.
Kim þarf því að sanna sig fyrir fyrirliðanum á næstu þremur vikum. „Það er auðvitað áhyggjuefni að hann sé ekki búinn að ná sér að fullu,“ sagði Pavin um Kim. „Ég talaði við hann í síðustu viku og hann telur sig verða betri og betri. Hann leggur mikið á sig og ætlar að reyna að koma þumalfingrinum í gott form.“
Kim hefur leikið illa síðan hann snéri aftur úr meiðslum. Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á bæði Bridgestone Invitational mótinu og PGA-meistaramótinu um síðustu helgi. Hann stóð sig hins vegar afar vel í Ryder-bikarnum fyrir tveimur árum á Valhalla vellinum og það gæti haft sitt að segja.
Myndir/golfsupport.nl