Fréttir | miðvikudagur 18. ágúst 2010 | 12:20

Williams ekki hræddur um starf sitt


Kylfusveinninn Steve Williams er ekki hræddur um að missa starfið sitt hjá Tiger Woods. Fjölmiðlar vestra hafa sýnt sambandi þeirra nokkurn áhuga að undanförnu og telja að Williams gæti orðið næsti starfsmaður Woods til að hverfa á braut.

Ég er þess fullviss um að ef leiðir okkar myndu skilja, þá væri ég sá fyrsti sem fengi að vita að því,“ sagði Williams sem hefur starfað hjá Woods í ellefu ár og eru þeir félagar orðnir mjög góðir vinir. „Ég sé það ekki gerast að við séum að fara að hætta samstarfi.“

Fólk á það til að slúðra þegar hann er ekki að spila vel og úrslitin eru ekki eins og við viljum. Við erum mjög góðir vinir og höfum farið í gegnum mjög erfiðan tíma saman, það er engin spurning um það,“ segir Williams.

Vill fá Foley

Williams er á þeirri skoðun að ef Woods fengi sér sveifluþjálfara, þá ætti það að vera þjálfarinn Sean Foley sem m.a. þjálfar þá Sean O‘Hair og Hunter Mahan.

Tiger er ekki búinn að ákveða hvort hann fái sér þjálfara eða ekki en ef hann ætlar að gera það þá ætti hann að veðja á Foley. Það féll mér í geð það sem Foley hafði fram að færa og Tiger gæti tekið miklum framförum undir hans stjórn.“

Myndir/golfsupport.nl