Fréttir | miðvikudagur 18. ágúst 2010 | 10:11

Karl Haraldsson er kylfingur vikunnar


Karl Haraldsson, kylfingur úr Golfklúbbi Vestmannaeyja, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er 26 ára Eyjapeyi, er golfkennari að mennt og er einnig að ljúka viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Karl hefur yfirumsjón með allri golfkennslu fyrir Golfklúbb Vestmannaeyja og lauk námi úr PGA-golfkennaraskólanum á síðasta ári. Við fengum að kynnast Kalla, eins og hann er jafnan kallaður, aðeins betur og létum hann svara nokkrum laufléttum spurningum.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Ég byrjaði í golfi 6 ára gamall þegar Steini Hallgríms, stórfrændi minn, dró mig á völlinn.“

Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Stundaði fótbolta á yngri árum og er enn aðeins að sprikla í handbolta þegar tími gefst.“

Hver eru helstu markmiðin?
„Markmiðið í golfi nú til dags er helst að hafa gaman af sportinu og láta gott að mér leiða sem golfkennari.“

Helstu afrek í golfinu?
„Varð Íslandsmeistari unglinga 15 ára gamall og hef unnið sveitakeppni unglinga tvisvar. Einnig hef ég keppt með unglingalandsliðinu í golfi og náðum við þar góðum árangri í nokkrum mótum. Hef verið hluti af sveitakeppnisliði GV í nokkur ár og tel það mikið afrek að halda okkur uppi í 1. deild, undanfarin tvo ár.“

Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Uss, þau eru mörg. Ekki öll birtingarhæf, en kem með eitt þegar ég var ungur og ákafur unglingur og var ekki sáttur með eitt högg sem ég sló í Íslandsmóti í Grafarholtinu. Ég kastaði frá mér kylfunni eins og vitlaus unglingur með þeim afleiðingum að kylfan hafnaði í skurði og fann hana ekki aftur. Hún hefur ekki enn komið í leitirnar.“

Ferðu í golfferð til útlanda í ár og þá hvert?
„Það er svona í vinnslu og ef maður fer þá skellir maður sér til Spánar.“

Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Styrkleiki minn er í langa spilinu en minn veikleiki eru pitch högg og vipp, aðallega vegna æfingaleysis.“

Hverjir eru uppáhalds kylfingarnir og af hverju?
„Hér innanlands er læriföður minn, Þorsteinn Hallgríms, skemmtilegur karakter innan vallar sem utan. Á erlendum vettvangi er Lee Westwood mjög flottur spilari.“

Ef þú mættir breyta einni golfreglu hverju myndir þú breyta?
„Ég væri til í að hafa fleiri kylfur í pokanum.“

Atvinnumaður í fótbolta eða golfi?
„Atvinnumaður í golfi að sjálfsögðu.“

Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Liverpool að sjálfsögu. Besta lið síðustu aldar.“

Hefur þú farið holu í höggi?
„Nei, en hef oft verið mjög nálægt því og eiginlega alltof oft mjög nálæft. Það eru líka bara grísarar sem fara holu í höggi.“

Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Hemmi Hreiðars og Andri Ólafs, fyrirliði ÍBV í fótboltanum.“

Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
„Já og nei. Var meira í því þegar maður var afreksspilari. Fer oftast á náðhúsið áður en ég fer út á völlinn.“

Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Ég held að Birgir Leifur sé  í dag okkar besti kylfingur. Efnilegastur er auðvitað minn maður Hallgrímur Júlíusson og Guðmundur Ágúst sem er frábær kylfingur og gríðarlega flottur karakter.“

Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Spila í góðra vina hópi á Þjóðhátíð í Eyjum en það langleiðinlegasta í golfi er að leita af golfboltanum.“

Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Já, ein saga kemur upp í hugann. Það er þegar ég átti forlátan dræver á mínum yngri árum sem var í miklu uppáhaldi. Eitt sumarið brotnaði skaftið á þessum dræver fjórum sinnum. Sló honum í flagstöng, keyrt yfir hann, brotnaði í sveiflu og síðast en ekki síst þegar ég braut hann vegna þess að hann var einfaldlega ekki nógu góður (sló lélegt golfhögg).“

Fylgist þú mikið með golfi?
„Já, ég horfi mikið á PGA-túrinn og fylgist mjög vel með hérna heima.“

Staðreyndir:
Nafn: Karl Haraldsson
Klúbbur: GV
Forgjöf: 1,9 fer hækkandi með árunum
Golfpokinn: Titleist Driver, Mizuno 3 tré, Mizuno hálfviti, Titleist járn, MD fleygjárn og Oddysey pútter.
Golfskór: Adidas
Golfhanski: Titleist
Markmið í golfinu: Verða klúbbmeistari einu sinni.
Fyrirmynd: Seve Ballesteros
Uppáhalds matur: Lundi
Uppáhalds drykkur: Mjöður og coke
Ég hlusta á: U2 og Árni Johnsen
Besti völlurinn: Vestmanneyjar að sjálfsögu og Hvaleyrin
Besta skor: 67 hvítir teigar í Eyjum
Besta vefsíðan: Facebook
Besta blaðið: Eyjafréttir
Besta bókin: Hvar er Valli
Besta bíómyndin: Happy Gilmore, sígild