Forsíða | sunnudagur 15. ágúst 2010 | 16:10

GS vann 2. deild kvenna


Golfklúbbur Suðurnesja vann 2. deild kvenna eftir sigur á Nesklúbbnum í úrslitaleik með tveimur vinningum gegn einum. Bæði lið unnu sig upp í efstu deild en leikið var í Mýrinni, 9 holu velli GKG. Konurnar björguðu því andliti sinna klúbba því karlasveitirnar duttu báðar niður úr efstu deild.

Tvær Karenar leiddu lið GS, þær Karen Sævarssdóttir, fyrrverandi áttfaldur Íslandsmeistari í höggleik og þrefaldur holumeistari og nafna hennar Guðnadóttir sem hefur verið sigursæl í sumar en hún varð Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni unglinga og vann svo eitt stigamót í sumar. GS vann allar viðureignir sínar og einungis einn leikur tapaðist og einn leikur endaði með jafntefli.
Með þeim tveimur voru i sveitinni þær Magdalena S. Þórisdóttir, Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, Íris Dögg Steinsdóttir og Heiðrún Rós Þórðardóttir.

Mynd kylfingur.is: Karen Sævarsdóttir leiddi Suðurnesjakonur til sigurs í 2. deild kvenna.