Forsíða | sunnudagur 15. ágúst 2010 | 14:21
GR leiðir í úrslitaleiknum gegn GKJ
Golfklúbbur Reykjavíkur er með forystu í úrslitaleiknum gegn GKJ á Hvaleyrarvelli en leikur liðanna hófst í morgun.
Í fjórmenningi eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús með 5 holna forystu eftir 12 holur og því formsatriði að ljúka þeirri viðureign. Í tvímenningi eru GR-ingar yfir í tveimur viðureignum.
Arnar Snær Hákonarson er yfir gegn Theodór Emil Karlssyni 3/0 eftir 12 holur og þá er Arnór Ingi Finnbjörnsson 1/0 yfir gegn Magnúsi Lárussyni, einnig eftir 12 holur. Kjölur er yfir í leik Rúnars Óla Einarssonar en hann á tvær holur á Birgi Guðjónsson. Jafnt er í viðureign Þórðar Rafns Gissurarsonar og Kristjáns Þór Einarssonar, sannarlega stórleikur þar á ferð.
Hægt er að fylgjast með stöðu mála hér.

Haraldur Franklín á 10. teig. Þórður Rafn á sama stað á efstu myndinni.

Þó nokkur fjöldi áhorfenda hefur verið á Hvaleyrinni undanfarna daga.

Hvaleyrin hefur að margra mati aldrei verið jafn góð og í þessu móti. Hér má sjá keppendur við 18. flötina.