Fréttir | laugardagur 14. ágúst 2010 | 22:02
GKG mætir GR í úrslitum hjá konunum
Það verða sveitir GKG og GR sem mætast í úrslitum í 1. deild kvenna í Sveitakeppni GSÍ. GR vann öruggan sigur á meisturum GK um sæti í úrslitum 4.5/0.5. Leikið er á Leirdalsvelli hjá GKG.
Í hinni undanúrslitaviðureigninni mættust heimastúlkur úr GKG og GKj og þar hafði sveit GKG betur, 3/2 þar sem úrslitin réðust í bráðabana í viðureign Ingunnar Gunnarsdóttur úr GKG og Heiðu Guðnadóttur úr GKj.
Einnig er hart barist fyrir lífi sínu í deildinni því tvö neðstu liðin falla úr 1. deild kvenna. GL og GO eru í ágætri stöðu eftir að hafa unnið leiki sína í dag en GO hafði betur gegn GA, 3/2, og GL vann GMS 4/1.
Hér má sjá öll nánari úrslit í umferð dagsins
Úrslit leikja í undanúrslitum:
GK-GR 0.5/4.5
GKG-GKj 3/2
Úrslit leikja um 5-8 sæti:
GO-GA 3/2
GMS-GL 1/4
Myndir/Kylfingur.is