Fréttir | laugardagur 14. ágúst 2010 | 10:12
Daly hætti vegna meiðsla
Kylfingurinn litríki, John Daly, er hættur keppni á PGA-meistaramótinu vegna meiðsla. Hann var gott sem búinn að spila sig út úr mótinu en hann var samtals á níu höggum yfir pari þegar keppni var hætt á öðrum keppnisdegi vegna myrkurs.
Það eru meiðsli í öxl sem eru að hrjá Daly að þessu sinni en hann vann PGA-meistaramótið eftirminnilega árið 1991 sem enn í dag er talinn einn af óvæntari sigrum á risamóti. Á Twitter síðu sinni sagði hann hefði líklega orðið fyrir meiðslunum er hann sló úr glompu á fyrstu holunni á Whistling Straits vellinum á fimmtudag.
Daly vonar að meiðslin séu ekki alvarleg en hann segist hafa spilað í gegnum hrikalegar þjáningar í mótinu. Líklegt er að hafi tognað á vöðva en hann mun undirgangast frekari rannsóknir og verður þá ljóst hversu alvarleg meiðslin eru.
Myndir/golfsupport.nl: John Daly hefur verið meiðslahrjáður í gegnum tíðina.
