Fréttir | föstudagur 13. ágúst 2010 | 12:25

Tinna lenti í fjórða sæti í Finnlandi


Opna finnska áhugameistaramótið lauk nú fyrir skömmu í Helsinki og varð Tinna Jóhannsdóttir úr Keili í fjórða sæti í kvennaflokki. Hún lék lokahringinn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari og varð samtals á tíu höggum yfir pari í mótinu.

Tinna fékk skramba á lokaholunni og hefði getað náð þriðja sætinu í mótinu. Hún var aðeins tveimur höggum á eftir efsta kylfingi þegar lokahringurinn var hálfnaður og hefði með smá heppni getað barist um sigurinn.

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum náði bestu árangri íslensku karlanna í mótinu en hann lenti í 24. sæti á samtals fimm höggum yfir pari eftir að hafa leikið lokahringinn á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG náði sér ekki á strik í dag og lék á 81 höggum í dag og varð í 36. sæti á 11 höggum yfir pari.

Árangur íslenska liðsins varð eftirfarandi:
Karlar:
24. sæti Ólafur Björn Loftsson NK 72-73-73 +5
36. sæti Alfreð Brynjar Kristinsson GKG 71-73-81 +11

Konur:
4. sæti Tinna Jóhannsdóttir GK 72-76-73 +8

Niðurskurður
Guðrún Pétursdóttir GR
Sigurþór Jónsson GK

Lokastaðan í mótinu

Myndir/Kylfingur.is