Fréttir | föstudagur 13. ágúst 2010 | 11:57

Endalaus meiðsli hindra framför hjá Day


Ástralar binda miklar vonir við hinn unga Jason Day sem er einn af ungu kylfingunum sem hefur látið til sín taka á stóru mótaröðunum. Í Ástralíu er hann talinn vera arftaki Greg Norman, slíkar eru væntingarnar til þessa 22ja ára kylfings sem vann sitt fyrsta mót á PGA-mótaröðinni í ár.

Sigurinn hefur hins vegar fallið í skuggann af meiðslum sem hafa hrjáð Day í nokkurn tíma og virðist hann aldrei náð að vera 100% heill þegar kemur að stóru mótunum. Í stað þess að fara á æfingarsvæðið eftir hringinn í gær ákvað hann að hvíla sig. Á fyrsta hringnum í PGA-meistaramótinu lék hann á 69 höggum en fékk svimaköst annað slagið.

Þetta hefur verið ótrúlegt. Stærsta vandamálið hjá mér hefur alltaf verið heilsan,“ segir Day sem tryggði sér keppnisrétt á PGA-mótaröðinni aðeins 19 ára gamall. Það er verður fróðlegt að fylgjast með Day í PGA-meistaramótinu og sjá hvort hann blandi sér í baráttuna um sigurinn.

Myndir/golfsupport.nl