Fréttir | föstudagur 13. ágúst 2010 | 07:22
Ungstirnið Manassero efstur í Sviss
Matteo Manassero frá Ítalíu er efstur þegar Rolex Trophy mótið á Áskorendamótaröðinni er hálfnað. Manassero, sem margir telja einn efnilegasta kylfing í heimi, er á 11 höggum undir pari í mótinu og er jafn Frakkanum Alex Kaleka. Þekktir kylfingar líkt og Pelle Edberg og Marius Thorp eru svo jafnir í þriðja sæti á tíu höggum undir pari.
Ítalinn ungi hefur risið hratt á stjörnuhiminn í atvinnugolfinu en hann hlaut silfurmedalíuna á Opna breska á síðasta ári og varð yngsti kylfingurinn í sögu Masters mótsins sem hefur komist í gegnum niðurskurðinn.
„Markmiðið er að vinna öll þau mót sem ég tek þátt í. Ég nýt þess að spila og tel mig geta unnið. Ég er að spila vel og hef mikið sjálfstraust,“ sagði Manassero við heimasíðu Evrópumótaraðarinnar.
Staðan í mótinu
Myndir/golfsupport.nl