Fréttir | þriðjudagur 10. ágúst 2010 | 11:39
GKG tilkynnir sveit fyrir titilvörnina
GKG tilkynnti í dag sveit sína sem leikur í sveitakeppni GSÍ sem fram fer um næstu helgi. Karlasveit GKG á titil að verja frá í fyrra þegar sveitin hafði betur í úrslitaleik eftir spennandi einvígi við GR á Jaðarsvelli á Akureyri. Sterkir kylfingar eins og Birgir Leifur Hafþórsson, Alfreð Brynjar Kristinsson, Sigmundur Einar Másson og Guðjón Henning Hilmarsson skipa sveitina og verður fróðlegt að fylgjast með framgöngu Íslandsmeistaranna í sveitakeppninni.
Kvennasveit GKG leikur á heimavelli því 1. og. 2 deild kvenna verður leikin á Leirdalsvelli. Hér að neðan má sjá sveitir GKG.
Karlar:
Birgir Leifur Hafþórsson
Alfreð Kristinsson
Bjarki Freyr Júlíusson
Björgvin Smári Kristjánsson
Guðjón Henning Hilmarsson
Kjartan Dór Kjartansson
Sigmundur E. Másson
Sigurður R. Ólafsson
Liðsstjóri: Gunnar Páll Þórisson
Konur:
Erna V. Ívarsdóttir
Hansína Þorkelsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Ingunn Einarsdóttir
Ingunn Gunnarsdóttir
Jónína Pálsdóttir
María Guðnadóttir
Guðfinna Halldórsdóttir
Liðsstjóri: Haraldur Þórðarson