Fréttir | mánudagur 9. ágúst 2010 | 17:23
Woods og Mickelson með í Kína
Tveir af bestu kylfingum heims, Tiger Woods og Phil Mickelson, verða á meðal keppenda á HSBC Champions mótinu sem fram fer í Shanhai í nóvember. Mickelson á titil að verja í mótinu en mótið tilheyrir heimsmótaröðinni þar sem verðlaunafé er hærra en á venjulegum PGA-mótum.
Mickelson hefur undanfarin fjögur ár tekið þátt í mótinu en þetta verður í fyrsta sinn sem Woods tekur þátt í mótinu í Kína. “Þetta er titill sem kylfingar vilja vinna og ég hlakka til að reyna að vinna mótið í ár,” sagði Woods sem verður vonandi búinn að finna taktinn í leik sínum eftir mikla niðursveiflu á undanförnum mánuðum í kjölfar skandals í einkalífinu.
Það verður án efa mikil lyftistöng fyrir mótshaldara að fá Woods á meðal keppenda enda hefur hann verið eitt helsta aðdráttarafl golfáhugamanna á undanförnum árum.??
Mynd/golfsupport.nl: Tiger Woods og Phil Mickelson verða á meðal keppenda í Kína.
jjk@vf.is