Fréttir | mánudagur 9. ágúst 2010 | 12:14
GR tilkynnir lið fyrir sveitakeppni GSÍ
Sveitakeppni GSÍ fer fram um næstu helgi og undirbúa klúbbar landsins sig nú af kappi fyrir keppnina. GR, sem leikur í fyrstu deild í bæði karla- og kvennaflokki, hefur tilkynnt hvaða kylfingar munu leika undir merkjum klúbbsins þetta árið. Í fyrstu deild karla er leikið á Hvaleyrarvelli hjá Keili en fyrsta og önnur deild kvenna er leikinn á Leirdalsvelli hjá GKG.
Þrír kylfingar, sem voru í liðinu í fyrra, ná ekki sæti í ár en það eru þeir Otto Sigurðsson, Heiðar Davíð Bragason og Sigurþór Jónsson en þeir tveir síðarnefndu leika nú undir merkjum annarra klúbba. Í þeirra stað koma inn í liðið þeir Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Tryggvi Pétursson.
Sveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum:
Karlasveit GR:
Arnar Snær Hákonarson (leikur sig inn af stigalista GSÍ)
Arnór Ingi Finnbjörnsson
Birgir Guðjónsson
Guðmundur Ágúst Kristjánsson (leikur sig inn í meistaramóti GR)
Haraldur Franklín Magnús
Stefán Már Stefánsson
Tryggvi Pétursson
Þórður Rafn Gissurarson (leikur sig inn af stigalista GSÍ)
Kvennasveit GR:
Berglind Björnsdóttir (leikur sig inn af stigalista GSÍ)
Guðrún Pétursdóttir
Halla Ragnarsdóttir
Hildur K. Þorvarðardóttir
Íris Katla Guðmundsdóttir
Ólafía Þ. Kristinsdóttir (leikur sig inn af stigalista GSÍ)
Ragnhildur Sigurðardóttir (leikur sig inn í meistaramóti GR)
Sunna Víðisdóttir
Mynd: Hér má sjá sveit GR á síðasta ári sem varð í öðru sæti á Jaðarsvelli.
jjk@vf.is